Ferill 23. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 23 . mál.


Sþ.

23. Tillaga til þingsályktunar



um læknisþjónustu á landsbyggðinni.

Flm.: Matthías Bjarnason.



     Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að ganga nú þegar svo frá hnútum að fullnægt sé læknisþjónustu í hinum dreifðu byggðum landsins í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu.

G r e i n a r g e r ð .


     Á undanförnum árum hefur orðið æ erfiðara að manna ýmis læknishéruð í dreifbýli landsins. Má þar til nefna t.d. Þingeyri, Flateyri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Vopnafjörð, Fáskrúðsfjörð og Djúpavog. Þetta veldur miklum áhyggjum því fólki sem býr við slíkt öryggisleysi. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu eiga allir þegnar þessa lands skýlausan rétt til að njóta bestu mögulegrar læknisþjónustu sem hægt er að veita hverju sinni.
    Ýmsar lausnir eru á þessum vanda. Í fyrsta lagi að hækka laun þeirra lækna sem störfum gegna í áðurnefndum héruðum. Í öðru lagi að sameina læknishéruð. Í þriðja lagi mætti hugsa sér að breyta H1-stöðvunum í H2-stöðvar þannig að þar starfi minnst tveir læknar hverju sinni. Ljóst er þó að launahækkun þarf að koma til og er eðlilegt og sanngjarnt að miða við laun aðstoðarlækna á sjúkrahúsum sem gegna vaktastörfum.