Ferill 24. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 24 . mál.


Sþ.

24. Tillaga til þingsályktunar



um vegar- og brúargerð yfir Gilsfjörð.

Flm.: Matthías Bjarnason.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hún hlutist til um að framkvæmdir við vegar - og brúargerð yfir Gilsfjörð hefjist af fullum krafti vorið 1992. Þegar verði hafist handa um að ljúka forhönnun þessara framkvæmda og í framhaldi af því að undirbúa útboð.
    Við endurskoðun vegáætlunar á þessu þingi verði gert ráð fyrir þessum framkvæmdum og áhersla lögð á að þeim ljúki á þremur árum.

G r e i n a r g e r ð .


     Íbúar í Austur-Barðastrandarsýslu hafa í mörg ár kvartað yfir lélegum vegi fyrir Gilsfjörð og sýnt mikinn áhuga á vegar- og brúargerð yfir Gilsfjörð. Tvær leiðir hafa verið kannaðar, sú fyrri að byggja veg og brú frá Kaldrana í Króksfjarðarnes, sem er 48 km vegalengd, eða frá Ólafsdal að Digramúla sem er 16,8 km vegalengd. Þessar vegalengdir eru miðaðar við Króksfjarðarnes í Reykhólahreppi og Neðri - Brunná í Saurbæjarhreppi. Vegurinn fyrir Gilsfjörð er hins vegar 24,9 km á milli fyrrnefndra staða.
     Vegurinn fyrir Gilsfjörð er víðast hvar lélegur og þarf að endurbyggja hann og gera nýjar brýr, en þær sem fyrir eru eru sumar hverjar mjög lélegar. Engar meiri háttar endurbætur hafa verið gerðar á þessum vegi síðustu tvo áratugina. Vegurinn um Gilsfjörð er erfiður farartálmi, þar er snjóþungt að vetrum og skriðuföll og snjóflóð tíð. Það er því ljóst að þessi vegargerð yrði mjög kostnaðarsöm og dýrt að halda þessari leið opinni að vetri til. Vegurinn um Svínadal í Dalasýslu hefur tekið miklum framförum og þegar slitlag verður komið á þann veg allan verður vegurinn fyrir Gilsfjörð flöskuháls á milli Austur - Barðastrandarsýslu og Dalasýslu.
     Það er ekkert álitamál að taka þarf þá ákvörðun að stytta vegalengdina á milli þessara byggðarlaga sem mest og því telur flutningsmaður þessarar tillögu vart annað koma til greina en veg og brú frá Kaldrana í Króksfjarðarnes og stytta á þann hátt veginn um 16,8 km.
     Alþingi hefur veitt fé til rannsókna á vegi og brú um Gilsfjörð sem hér segir:

    1985
0
,3 millj. kr.
    1986
1
,0 millj. kr.
    1987
1
,0 millj. kr.
    1988
2
,0 millj. kr.
    1989
3
,2 millj. kr.
    1990
5
,0 millj. kr.
    
    Þessi framlög eru á verðlagi hvers árs fyrir sig.
     Flutningsmaður óskaði eftir upplýsingum frá vegamálastjóra um þessar rannsóknir og grófum hugmyndum um heildarkostnað þessara framkvæmda. Hann brást fljótt og vel við þessari beiðni og vann Jón Helgason yfirverkfræðingur þetta yfirlit sem birt er hér orðrétt:
     „Fyrstu athuganir 1984 – 85 bentu til að bæði 1. og 2. leið gæfu jákvæða afkastavexti. Auk almennra athugana (landmælingar, umferð, námukönnun o.fl.) hefur síðan einkum verið unnið við leið 1, enda þar mest að sækja í óbeinum hagnaði sem ekki gengur inn í arðsemisreikninga. Sjávarföll utan við Gilsfjörð eru einhver hin mestu sem þekkjast við landið. Gerðir hafa verið frumreikningar á vatnafari fjarðarins með tilliti til hugsanlegrar þrengingar í mynni hans. Ef tryggja ætti óbreytt ástand að mestu þarf 450 – 500 metra langa brú. Í frumáætlun um kostnað (1984) er gert ráð fyrir að heimild fáist til nokkurrar þrengingar og reiknað með 300 m langri brú. Heildarkostnaður er þá áætlaður um 660 millj. kr. (á verðlagi í júlí 1990).
     Kostnaður við uppbyggingu núverandi vegar er á sama verðlagi áætlaður um 270 millj. kr. Mismunur fjárfestingar er þá 390 millj. kr. og sýna útreikningar um 1% arðsemi.
     Þessar athuganir á valkostum í vegargerð um Gilsfjörð árið 1984 voru byggðar á mjög takmarkaðri vitneskju um aðstæður í firðinum. Markmið með þessari fyrstu athugun var hins vegar aðallega að meta stærðargráðu kostnaðar við vegargerð þessa og auðvelda mat á rannsóknarþörf vegna þessa leiðarvals.
     Eins og áður sagði var athyglinni í byrjun beint að leið 1.
     Fyrstu verkefnin, sem ganga þurfti í, var að framkvæma nauðsynlegar landmælingar til að kortleggja mætti a.m.k. ysta hluta fjarðarins og lauk því með kortagerð í júní 1987. Samhliða þessum mælingum voru gerðar sjávarfallamælingar í stuttan tíma til að byggja fyrstu vatnafarsreikninga á. Í ljós kom strax að sjávarföllin í firðinum voru mjög bjöguð. Vatnsborðshækkun á aðfalli er mjög hröð en á fjörunni fellur ekki alveg út miðað við eðlileg sjávarföll. Þetta eru þættir sem hafa óhagstæð áhrif á lengd brúaropa ef reyna á að halda vatnsborðssveiflunni óskertri. Stærðin á lóninu sem myndast innan við leið 1 er af svipaðri stærð og lónið verður stærst innan Borgarfjarðarbrúar (um það bil 27 km 2 ).
     Byrjað var á botnrannsóknum í Gilsfirði sumarið 1988. Fjörðurinn var dýptarmældur og reyndist hann frekar grunnur. Síðan var hafist handa við að mæla dýpi á klöpp, vegna grundunar mannvirkja. Notaðar voru bæði hljóðhraðamælingar og endurvarpsmælingar til að staðsetja klöppina. Þessar mælingar gengu erfiðlega og ekki áfallalaust. Niðurstöður urðu nokkuð á annan veg en áætlað hafði verið eftir yfirlitsathugun á legu og halla klapparlaga á yfirborði. Líklega verður því að bæta eitthvað við þessar mælingar á seinni stigum hönnunar mannvirkja.
     Á árunum 1987 og 1988 voru gerðar yfirlitsathuganir á líklegum námusvæðum fyrir grjótvörn, fyllingar og burðarlög. Þessum athugunum lauk með samráði við Náttúruverndarráð haustið 1988. Niðurstöður úr þessum athugunum verða að teljast vel viðunandi. Nokkrar viðbótarathuganir voru gerðar haustið 1989. Niðurstaðan er sú að Náttúruverndarráð hefur heimilað þessa vegagerð.
     Sumarið 1988 gerði Líffræðistofnun Háskóla Íslands forkönnun á lífríki Gilsfjarðar sem lauk með skýrslu í febrúar 1989. Þar kemur fram að lífríki fjarðarins er frekar fábrotið. Hins vegar virðast fuglar notfæra sér það að fjaran er verulega seinna á ferðinni í Gilsfirði en nálægum fjörðum, þannig að þeir eru þar nokkuð á ferð.
     Markverðust er þá nokkurra vikna dvöl rauðbrystings í firðinum á leið hans til Grænlands og dílaskarfsvarp í Eyjarbarni.
     Líffræðistofnun gerði svo vorið 1990 sérstaka athugun á mikilvægi Gilsfjarðar fyrir rauðbrystingsstofninn. Mitt mat á þessum líffræðiskýrslum er að mjög vel komi til greina að loka firðinum að mestu.
     Umferð, sem fer fyrir fjörðinn, er að meðaltali um 90 bílar á dag allt árið. Þetta er svipað umferðarmagn og er í botni Dýrafjarðar. Leið 1 í Gilsfirði býður upp á nokkra útfærslumöguleika en þeir felast aðallega í misstórum brúm, en einnig í staðsetningu þeirra. Skoða þarf möguleikana allt frá nánast lokun með yfirfalli upp í stóra brú (um 500 m). Vatnshraðinn í brúnum með tilheyrandi rofmætti er nokkuð mikill í öllum brúarvalkostum þar sem dýpi í brúaropi er mikið. Vatnshraði fer ekki að minnka fyrr en býrnar eru orðnar verulega stórar (500 m og lengri).
     Orsakir fyrir þessu eru öðru fremur hin stóru sjávarföll sem eru innarlega í Breiðafirði ásamt hinni miklu bjögun sjávarfallasveiflunnar í Gilsfirðinum sjálfum.
     Vinna við forhönnun á nokkrum valkostum í vegargerð yfir Gilsfjörð er að hefjast um þessar mundir og byggir hún á þeim upplýsingum og rannsóknum sem fram hafa farið.
     Vinnuáætlun Vegagerðar ríkisins miðar nú að því að í upphafi næsta árs liggi fyrir tillaga um leiðaval í Gilsfirði. Þannig verður hægt að taka afstöðu til málsins við afgreiðslu vegáætlunar vorið 1991.
     Nú er verið að vinna að forhönnun og skipulagi á því hvernig hægt er að loka firðinum. Þegar fjörðurinn er þrengdur eykst straumhraði mjög fljótlega og rof eykst. Á síðustu stigum lokunar þegar vatnsopið er orðið lítið er útfærsla þessa verkþáttar mjög dýr liður í kostnaði við litla brú á leið 1. Kostnaðarhugmyndir okkar á þessu stigi eru á bilinu 550 – 660 millj. kr. (verðlag í júlí 1990).“
     Flutningsmaður vekur sérstaka athygli á því að samgöngur frá Austur - Barðastrandarsýslu fara að mestu fram á landi og þá um Gilsfjörð. Íbúarnir fá alla læknisþjónustu frá Heilsugæslustöðinni í Búðardal. Auk þess eru margvísleg önnur samskipti á milli þessara héraða, svo sem mjólkurflutningar og fjölmörg félagsleg samskipti.
     Á mörgum undanförnum árum hafa íbúar Austur - Barðastrandarsýslu sótt fast á alþingismenn Vestfjarða og Vesturlands að þeir beiti sér fyrir framkvæmd þessa nauðsynlega verkefnis. Oftar en einu sinni hefur m.a. verið efnt til almennrar undirskriftasöfnunar meðal íbúa suðurhluta Vestfjarða og Dalasýslu.
     Á sl. vetri var haldinn fundur með alþingismönnum þessara tveggja kjördæma og fulltrúum heimamanna sem þá knúðu á þingmenn um framkvæmdir í þessu mikilvæga samgöngumáli. Á þeim fundi kom skýrt fram að allir þingmenn vildu hraða framkvæmd þessari en töldu litlar líkur á að fjármagn fengist fyrr en vegar - og brúargerð yfir Dýrafjörð væri um það bil að ljúka. Nú er sú langþráða framkvæmd komin á fullt og vonir standa til að akvegasamband yfir Dýrafjörð verði veruleiki seint á næsta hausti, þó slitlag verði lagt sumarið 1992.
     Það er því skoðun flutningsmanns að framlagning og afgreiðsla þessarar tillögu sé í fullu samræmi við þau fyrirheit sem þessu fólki hafa verið gefin.
     Að dómi flutningsmanns þessarar tillögu kemur ekki til greina að skera niður framlög til vegamála og verður að gera kröfu til þess að niðurskurður tveggja síðustu ára verði bættur að fullu. Íbúar á landsbyggðinni koma ekki til með að sætta sig við annað.


Fylgiskjal.
.......



Gilsfjörður.


    Skoðaðar hafa verið eftirtaldar leiðir um Gilsfjörð (sjá meðfylgjandi kort). Uppgefnar vegalengdir eru frá Neðri - Brunná í Króksfjarðarnes.

Lengd

Stytting


km

km


_____________
    1. Kaldrani — Króksfjarðarnes 8
,0
16 ,9
    2. Ólafsdalur — Digrimúli 16
,8
8 ,1
    3. Núverandi vegur 24
,9
0 ,0


Repró.