Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 55 . mál.
Ed.
55. Frumvarp til laga
um opinbera réttaraðstoð.
(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið opinberrar réttaraðstoðar er að veita almenningi ráðgjöf á sviði lögfræði og jafnframt leitast við að tryggja að réttindi einstaklinga glatist ekki sökum lítilla efna.
Dómsmálaráðherra hefur umsjón með opinberri réttaraðstoð sem skiptist í:
2. gr.
Menn, sem hafa fasta búsetu hér á landi, eiga rétt til opinberrar réttaraðstoðar.
II. KAFLI
Almenn ráðgjöf.
3. gr.
Almenn ráðgjöf er fólgin í munnlegum leiðbeiningum um réttarreglur og lagaúrræði varðandi tiltekið lögfræðilegt álitaefni hvort sem réttarágreiningur er orðinn eða ekki. Í ráðgjöfinni felst hvorki aðstoð við bréfaskriftir né gerð skjala eða skriflegra álitsgerða.
4. gr.
Einstakir lögmenn eða samtök lögmanna, sem ráðherra gerir samning við, láta almenna ráðgjöf í té gegn fastri þóknun sem greiðist úr ríkissjóði. Þar sem ekki er kostur á þjónustu starfandi lögmanna eða fulltrúa þeirra getur ráðherra samið við aðra lögfræðinga um að veita ráðgjöfina.
III. KAFLI
Aðstoð í einstökum málum.
5. gr.
Aðstoð í einstökum málum felst í venjubundinni lögfræðiráðgjöf, einfaldri skjalagerð, bréfaskiptum, umsóknum, kærum og mótum hjá opinberum stofnunum eða sýslunarmönnum vegna:
6. gr.
Sýslumaður getur í einstökum tilvikum heimilað að aðstoð skv. 5. gr. skuli veitt umfram það sem þar segir, enda sé líklegt að hún leiði til lausnar ágreiningsefna án málshöfðunar eða sérstakar ástæður mæla með því.
Á sama hátt getur sýslumaður einnig í sérstökum tilvikum heimilað aðstoð samkvæmt þessari grein til manns sem á í verulegum fjárhagsörðugleikum, en vill freista þess að koma nýrri skipan á fjármál sín, sbr. 7. gr. gjaldþrotalaga, nr. 5 frá 5. maí 1978.
7. gr.
Ráðherra ákveður árlega í samráði við Lögmannafélag Íslands hvaða starfandi héraðsdóms - og hæstaréttarlögmenn láti í té aðstoð í einstökum málum sem lög þessi ná til. Skal birta opinberlega lista með nöfnum lögmannanna og er þeim skylt að veita aðstoðina. Þeir geta þó synjað um aðstoð í einstökum tilvikum ef þeir telja málefni þess eðlis að aðstoðin sé bersýnilega þarflaus, hún brjóti í bága við siðareglur lögmanna.
8. gr.
Rétt til aðstoðar í einstökum málum hafa einstaklingar eða hjón með tekjur og eignir undir nánar tilgreindum fjárhæðum, enda sé aðstoðin ekki tengd atvinnurekstri þeirra. Fjárhæðir þessar skulu ákveðnar með reglugerð.
Aðstoð skv. 1. mgr. verður ekki veitt oftar en einu sinni á hverju almanaksári. Sýslumaður getur þó heimilað undantekningu þar frá ef sérstaklega stendur á.
9. gr.
Fyrir veitta aðstoð skv. 5. gr. greiðist föst þóknun og skal upphæð hennar ákveðin í reglugerð. Ríkissjóður greiðir 3 / 4 þóknunar, en skjólstæðingur 1 / 4 .
Fyrir veitta aðstoð skv. 6. gr. greiðist þóknun og má hún nema allt að þrefaldri þóknun skv. 1 mgr. Ríkissjóður greiðir helming þóknunar, en skjólstæðingur helming. Sýslumaður í því umdæmi, sem aðstoð er veitt í, úrskurðar um fjárhæð þóknunar samkvæmt þessari málsgrein eftir málsatvikum hverju sinni. Kæra má slíkan úrskurð til ráðuneytisins.
10. gr.
Lögmaður, sem veitir aðstoð skv. 5. gr., skal fá greiddan kostnaðarhluta ríkissjóðs hjá embætti sýslumanns í því umdæmi sem aðstoð er veitt, sbr. 9. gr., enda leggi hann fram umsókn um að ríkissjóður taki þátt í kostnaði við lögfræðiaðstoð ásamt reikningi sínum. Umsókn skal undirrituð af þeim sem aðstoðar beiðist og þeim sem hana veitir.
Í reglugerð skal nánar ákveða hvaða upplýsingar og yfirlýsingar skuli fylgja umsókn skv. 1. mgr., þar á meðal upplýsingar um tekjur og eignir þess sem aðstoðar beiðist og yfirlýsing um að sýslumanni sé heimilt að afla staðfestingar skattyfirvalda um að rétt sé frá skýrt.
Nú synjar sýslumaður um kostnaðarþátttöku fyrir aðstoð og má þá skjóta synjuninni til úrskurðar ráðuneytisins.
IV. KAFLI
Réttargæsla fyrir brotaþola.
11. gr.
Í málum, sem varða brot á 190. og 194. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19 12. febrúar 1940, skal þegar við upphaf lögreglurannsóknar kveðja til réttargæslumann fyrir þann sem ætla má að fyrir broti hafi orðið.
Í málum sem varða brot á 195. – 203. gr. og 206. gr. almennra hegningarlaga er rannsóknaraðila eða dómara heimilt að kveðja til réttargæslumann fyrir þann sem ætla má að fyrir broti hafi orðið ef sá ber fram ósk um það. Skal brotaþoli inntur eftir því hvort hann óski eftir réttargæslumanni.
Einnig er heimilt, ef nauðsynlegt þykir að mati rannsóknaraðila eða dómara, að kveðja réttargæslumann til á sama hátt fyrir þann sem ætla má að fyrir broti hafi orðið er varðað getur við 218. eða 226. gr. almennra hegningarlaga.
12. gr.
Kostnað við réttargæslu brotaþola skv. 11. gr. skal greiða úr ríkissjóði, en endurkrefja skal kostnaðinn fyrir dómi ef til saksóknar kemur.
V. KAFLI
Um gjafsókn og gjafvörn.
13. gr.
Orðið gjafsókn nær bæði til gjafsóknar og gjafvarnar vegna reksturs einkamála fyrir dómi.
14. gr.
Ráðherra skal skipa nefnd þriggja löglærðra manna, gjafsóknarnefnd, til fjögurra ára í senn. Skal einn nefndarmanna skipaður samkvæmt tilnefningu Lögmannafélags Íslands. Nefndin skal veita umsögn um gjafsóknarbeiðnir og móta starfsreglur um veitingu gjafsóknarleyfa.
15. gr.
Ráðherra veitir gjafsóknarleyfi samkvæmt umsókn þar að lútandi og að fenginni umsögn gjafsóknarnefndar. Skilyrði gjafsóknarleyfis er að málstaður umsækjanda gefi nægilegt tilefni til málsóknar og að efnahag hans sé svo háttað að kostnaður málsins verði honum fyrirsjáanlega ofviða, hvort tveggja að mati gjafsóknarnefndar.
Ráðherra setur ákvæði í reglugerð um viðmiðunarfjárhæðir tekna og eigna þeirra sem gjafsóknar geta notið. Við mat á efnahag umsækjanda skal einnig taka tillit til tekna og eigna maka eða sambúðarmanns og til tekna og eigna foreldra ef umsækjandi um gjafsókn er undir 18 ára aldri.
16. gr.
Ráðherra getur, ef sérstaklega stendur á, veitt gjafsókn, enda þótt skilyrðum 15. gr. sé ekki fullnægt. Til álita koma einkum mál, þar sem tekist er á um grundvallaratriði við lagatúlkun, fjallað er um mikilvæga hagsmuni almennings eða málið hefur verulega þýðingu fyrir atvinnu - og félagslega stöðu umsækjanda. Gjafsóknarleyfi verður ekki veitt á grundvelli þessarar greinar nema gjafsóknarnefnd hafi fjallað um umsókn og mælt með því að gjafsókn verði veitt.
17. gr.
Gjafsóknarleyfi skuldbindur ríkissjóð til greiðslu málskostnaðar skv. 18. gr. eftir því sem kveðið er á í dómi að svo miklu leyti sem fjárskuldbinding ríkissjóðs er ekki takmörkuð í leyfinu.
Nú vinnur gjafsóknarhafi mál sitt fyrir héraðsdómi að hluta eða að öllu leyti, en gagnaðili skýtur málinu til Hæstaréttar og nær leyfið þá einnig til málskostnaðar sem þar er dæmdur, þar á meðal í gagnsök fyrir Hæstarétti.
Í gjafsóknarleyfi skal skýrt koma fram til hvaða máls leyfi taki, hver sé lögmaður leyfishafa og fyrir hvaða dómstigi málið sé rekið.
18. gr.
Málskostnaður samkvæmt lögum þessum telst:
Takist dómsátt um málið skal dómari engu að síður ákveða málskostnað.
Gjafsóknarleyfi nær bæði til aðalmáls og aukamála í sambandi við það, svo sem vitnamála og matsmála auk lögbanns - og kyrrsetningargerða og fullnustugerða, nema takmarkanir séu gerðar í leyfisbréfi.
Gjafsóknarleyfi fellur ekki niður við andlát leyfishafa.
Afturkalla má gjafsóknarleyfi ef í ljós kemur að það hefur verið veitt að ófyrirsynju eða hagur leyfishafa breytist svo að þess er ekki lengur þörf. Við afturköllun fellur greiðsluskylda ríkissjóðs niður.
Gjafsóknarleyfi nær einungis til þess kostnaðar sem gjafsóknarhafi hefur af málarekstri sínum, en haggar í engu skyldu hans til greiðslu málskostnaðar til gagnaðila síns samkvæmt dómi eða dómsátt.
Sé gagnaðili dæmdur til greiðslu málskostnaðar skal ekki taka mið af því að gjafsóknarleyfi hefur verið veitt. Skal málskostnaður renna í ríkissjóð. Hafi gjafsóknarhafi sjálfur haft kostnað af málinu skal ákveðið í dómi hver hluti dæmds málskostnaðar skuli renna til gjafsóknarhafa og hver hluti skuli renna í ríkissjóð.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði
.19. gr.
Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara. Viðmiðunarfjárhæðum, sem settar eru í reglugerðinni skv. 8., 9. og 15. grein laganna, skal breyta árlega í samræmi við almennar verðbreytingar og skal í janúar ár hvert auglýsa breyttar viðmiðunarfjárhæðir.
20. gr.
Lög þessi taka gildi sem hér segir: I. – II. og IV. – VI. kaflar laganna taka gildi 1. janúar 1991 og jafnframt fellur þá úr gildi XI. kafli laga nr. 85 23. júní 1936, um meðferð einkamála í héraði. III. kafli laganna tekur gildi 1. júní 1992.
Ákvæði til bráðabirgða.
Fram til gildistöku laga nr. 92 1. júní 1989, um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, fara sýslumenn, bæjarfógetar og borgarfógetaembættið í Reykjavík með þau verkefni sem falin eru sýslumönnum skv. 5., 6., 9. og 10. gr. laganna.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta var lagt fram á síðasta þingi en varð ekki útrætt. Því fylgdu þá eftirfarandi athugasemdir:
Frumvarp þetta er samið af nefnd sem Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra skipaði í maímánuði 1988, en í nefndinni sátu Björn Friðfinnsson, þáverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður og Björn Þ. Guðmundsson prófessor. Haustið 1989 bættist Sigurður Jónsson, núverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, í nefndina. Ritari nefndarinnar hefur frá upphafi verið Skúli Guðmundsson skrifstofustjóri.
Lögfræðiaðstoð við almenning hefur áður verið verið á dagskrá hér á landi og má minna á tillögu til þingsályktunar sem Ragnar Arnalds og Svava Jakobsdóttir fluttu á Alþingi veturinn 1974 – 1975, um lögfræðiaðstoð fyrir efnalítið fólk. Tillögunni var vísað til ríkisstjórnarinnar. Haustið 1978 skipaði Ólafur Jóhannesson dómsmálaráðherra starfshóp til að huga að lagareglum um ókeypis lögfræðiþjónustu fyrir efnalítið fólk undir forustu Eiríks Tómassonar, þáverandi aðstoðarmanns dómsmálaráðherra, en aðrir nefndarmenn voru Björn Þ. Guðmundsson prófessor, Guðjón Steingrímsson hæstaréttarlögmaður, Magnús Thoroddsen, þáverandi borgardómari, og Ólöf Pétursdóttir, þáverandi fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu. Starfshópurinn skilaði tillögum að frumvarpi og á þeim var byggt frumvarp til laga um lögfræðiaðstoð sem flutt var sem stjórnarfrumvarp á 101. löggjafarþingi 1978 – 1979 og aftur á 102. löggjafarþingi veturinn 1979 – 1980.
Löggjöf um lögfræði - eða réttaraðstoð við almenning er nú víðast hvar í gildi í nágrannaríkjum okkar og hefur nefndin haft hliðsjón af því fyrirkomulagi sem þar tíðkast við samningu ákvæðanna í II. og III. kafla frumvarpsins.
Á síðustu árum hafa komið fram raddir um nauðsyn lögfræðilegrar aðstoðar við brotaþola í málum sem varða kynferðislegt ofbeldi og líkamsárásir af öðru tagi. Sem dæmi um slíkt má nefna niðurstöður nefndar sem fjallaði um nauðgunarmál, afleiðingar þeirra og aðgerðir gegn þeim, en nefndin skilaði áliti síðla árs 1988.
Í XI. kafla laga nr. 85 frá 23. júní 1936, um meðferð einkamála í héraði, eru reglur um gjafsókn og gjafvörn. Eru þær reglur nú orðnar úreltar um margt og hefur oft verið rætt um endurskoðun þeirra. Alþingi samþykkti 17. apríl 1989 svohljóðandi þingsályktun: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta endurskoða ákvæði laga um gjafsókn í ljósi fenginnar reynslu með það fyrir augum að auðvelda efnalitlu fólki að ná rétti sínum að lögum.“
Í frumvarpi því, sem hér liggur fyrir, er reynt að sameina ákvæði um lögfræðilega aðstoð við almenning, aðstoð við brotaþola og ákvæði um gjafsókn og gjafvörn í einum lagabálki. Upphaflega hugðist nefndin einnig fella ákvæði um réttargæslumenn grunaðra manna og sökunauta í frumvarpið, en frá því var horfið að ábendingu réttarfarsnefndar, en endurskoðuð ákvæði um það efni er að finna í nýju frumvarpi til laga um meðferð opinberra mála.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Nefndin hefur rætt mikið um nafn frumvarpsins, en fyrra frumvarp bar nafnið „frumvarp til laga um lögfræðiaðstoð“. Hér er hins vegar um víðtækari aðstoð hins opinbera að ræða en þar var lögð til og var það niðurstaða nefndarinnar að „réttaraðstoð“ væri heppilegt samheiti þeirrar aðstoðar, sbr. retshjælp á dönsku og retthjelp á norsku.
Í greininni er gerð grein fyrir skiptingu frumvarpsins í fjóra þætti sem síðar er fjallað sérstaklega um í II. – V. kafla.
Um 2. gr.
Hér er miðað að við að allir þeir einstaklingar, sem fasta búsetu hafa hér á landi, eigi rétt til opinberrar réttaraðstoðar. Það felur í sér að erlendir ríkisborgarar með lögheimili hér á landi njóti að þessu leyti sömu réttinda og íslenskir ríkisborgarar.
Um II. kafla
.Í kaflanum er fjallað um almenna ráðgjöf við almenning, en samkvæmt frumvarpinu er hér um að ræða munnlegar leiðbeiningar sem veittar eru af lögmönnum eða á vegum samtaka lögmanna. Fyrirkomulagið er á þann veg að dómsmálaráðherra semur við lögmenn eða samtök þeirra um að skipuleggja slíka ráðgjöf á ákveðnum tímum, t.d. 1 – 2 sinnum í viku, 2 – 3 klukkustundir í hvert sinn. Ráðgjöf þessi er veitt að kostnaðarlausu fyrir þá sem hana nýta sér, en ekki er gert ráð fyrir að hún kosti ríkissjóð mikið fé. Í nágrannalöndunum hafa samtök lögmanna víða tekið að sér slíka ráðgjöf gegn mjög vægri þóknun.
Um 3. gr.
Í þessari grein er nánar skilgreint í hverju almenn ráðgjöf samkvæmt frumvarpinu sé fólgin. Er um að ræða munnlegar leiðbeiningar um réttarreglur og lagaúrræði varðandi tiltekið lögfræðilegt álitaefni hvort sem deilumál er komið upp eða ekki. Aðstoð við bréfaskriftir eða gerð skriflegra álitsgerða eða annarra skjala er ekki innifalin í ráðgjöfinni.
Um 4. gr.
Hér er nánar gerð grein fyrir því fyrirkomulagi að ráðherra semji við lögmenn eða samtök lögmanna um að þessir aðilar taki að sér að láta í té almenna ráðgjöf. Þar sem ekki er kostur á þjónustu starfandi lögmanna eða fulltrúa þeirra getur ráðherra samið við aðra lögfræðinga um að veita almenna lögfræðiráðgjöf til almennings.
Um III. kafla.
Í þessum kafla frumvarpsins er fjallað um aðstoð hins opinbera í einstökum málum og er framkvæmd þeirra ákvæða sá þáttur frumvarpsins sem mestan kostnað mun hafa í för með sér. Erfitt er að áætla fyrir fram hver kostnaður af slíkri aðstoða muni verða. Þótt slík aðstoð sé aðeins veitt fólki með tekjur undir ákveðnum mörkum er ekki fyrir fram hægt að áætla hvað margir muni notfæra sér hana. Gert er ráð fyrir að í samráði við samtök lögmanna verði ákveðið af ráðherra hvaða lögmenn láti aðstoð í té og skal birta lista um nöfn þeirra. Þeir sem leita aðstoðar snúa sér til lögmanna sem skráðir eru á listann og þeir kynna sér hvort um er að ræða aðila sem á rétt á aðstoð. Aðstoðin er síðan látin í té og lögmaðurinn snýr sér svo til sýslumanns og leggur þar fram umsókn um kostnaðarþátttöku ríkissjóðs. Sýslumaður úrskurðar svo um greiðslu og í ákveðnum tilvikum getur hann úrskurðað um frekari aðstoð. Fyrirkomulagi er hagað á þann hátt að sem auðveldast verði fyrir þann sem aðstoðar nýtur, en síðan verður að gera ráð fyrir úrtakskönnunum á efnahag þeirra sem fengið hafa aðstoðina í því skyni að veita aðhald um rétta upplýsingagjöf.
Aðstoð, eins og hér greinir, er veitt í nágrannaríkjunum og er gerð nánari grein fyrir því í fylgiskjali með frumvarpinu.
Um 5. gr.
Í þessari grein eru talin upp þau svið sem aðstoðina skal veita á, en með aðstoð er átt við venjubundna lögfræðiráðgjöf, einfalda skjalagerð, bréfaskipti, samningu umsókna, kærur og mót hjá opinberum stofnunum.
Ef um er að ræða flókin mál, sem krefjast verulegrar vinnu lögmanns, falla þau utan aðstoðar samkvæmt þessari grein, en hægt er að leita heimildar sýslumanns fyrir viðbótaraðstoð, sbr. 6. gr. Tekið skal fram að aðstoðin nær ekki til opinberra mála ( refsimála), en hins vegar nær aðstoðin bæði til einkamála sem útkljáð yrðu af dómstólum og mála sem lúta úrslausnar stjórnsýsluaðila.
Um 6. gr.
Hér er fjallað um viðbótaraðstoð ef lágmarksaðstoð skv. 5. gr. nægir ekki. Ekki er gert ráð fyrir að aðstoð samkvæmt lögum þessum geti fullnægt þörfinni fyrir lögfræðiaðstoð í flóknum eða erfiðum málum, en þóknun fyrir viðbótaraðstoð má nema allt að þrefaldri þóknun fyrir aðstoð skv. 5. gr., sbr. 9. gr. Á móti greiðir sá sem aðstoðar nýtur sjálfur hærri hluta kostnaðar.
Um 7. gr.
Samkvæmt þessari grein ákveður ráðherra árlega í samráði við Lögmannafélag Íslands hvaða starfandi héraðsdóms - og hæstaréttarlögmenn láti í té aðstoð við almenning samkvæmt ákvæðum þessa kafla. Gera verður ráð fyrir að Lögmannafélag Íslands kanni áhuga lögmanna til þess að starfa að aðstoð í einstökum málum sem greidd er að hluta af hinu opinbera samkvæmt lögum þessum og að ráðherra ákveði síðan í samráði við það hvaða lögmenn veiti aðstoðina.
Um 8. gr.
Aðstoð samkvæmt þessum kafla er bundin við efnalítið fólk og er gert ráð fyrir að hún verði takmörkuð við þá sem hafi tekjur og eignir undir mörkum sem ákveðin verði í reglugerð. Samkvæmt 19. gr. skal endurskoða viðmiðunarfjárhæðir einu sinni á ári til samræmis við verðbreytingar.
Gert er ráð fyrir að hver aðili geti eigi notið aðstoðar samkvæmt þessum kafla oftar en einu sinni á hverju almanaksári, en sýslumaður getur þó heimilað undantekningu þar frá í sérstökum tilvikum.
Um 9. gr.
Gert er ráð fyrir að þóknun fyrir aðstoð skv. 5. gr. sé ákveðin í reglugerð og greiðir sá sem aðstoðar nýtur 1 / 4 hluta þóknunarinnar, en 3 / 4 greiðist af ríkissjóði. Sé um viðbótaraðstoð að ræða skv. 6. gr. úrskurðar sýslumaður um fjárhæð þóknunar sem nema má allt að þrefaldri grunnþóknun, en þá greiðir sá sem hennar nýtur helming þóknunarinnar en ríkissjóður hinn helminginn.
Þetta er sama regla og gildir í Danmörku, en þar nam þóknun fyrir venjulega aðstoð 610 dönskum krónum árið 1988, þ.e. 500 krónum + 110 krónum í virðisaukaskatt og greiddi hið opinbera 3 / 4 kostnaðar. Þóknun fyrir viðbótaraðstoð nam allt að 1.830 dönskum krónum og þar af greiddi hið opinbera helming fjárhæðarinnar.
Sýslumaður úrskurðar um þóknun lögmanns fyrir viðbótaraðstoð samkvæmt þessari grein og má kæra slíkan úrskurð til dómsmálaráðuneytisins.
Um 10. gr.
Í þessari grein er fjallað um greiðslufyrirkomulag til lögmanns. Gert er ráð fyrir að lögmaður, sem veitt hefur aðstoð, leggi fram við embætti sýslumanns umsókn, sem undirrituð er af þeim sem aðstoðar nýtur og þeim sem látið hefur hana í té. Í reglugerð skal ákveða nánar hvaða upplýsingar og yfirlýsingar skuli fylgja umsókn, þar á meðal yfirlýsing um að sýslumanni skuli heimilt að afla staðfestingar skattyfirvalda um að rétt sé frá skýrt. Er þetta gert til þess að auðvelda úrtakskannanir á því hvort aðstoð sé gefin á réttum forsendum.
Lögmenn, sem veita aðstoð samkvæmt þessum kafla, þekkja vel þær reglur sem fylgt er um tekjur og eignir fólks og þær verklagsreglur sem skapast munu varðandi viðbótaraðstoð. Verður því að gera ráð fyrir að ekki komi upp mörg ágreiningsmál varðandi greiðslur, en synjun sýslumanns um kostnaðarþátttöku má skjóta til úrskurðar dómsmálaráðuneytisins.
Um IV. kafla.
Eins og áður er vikið að er hér um nýmæli að ræða, en nauðsyn þykir bera til þess að þeir sem orðið hafa fyrir tilteknum refsiverðum brotum njóti lögmannsaðstoðar við kærumeðferð og gerð bótakröfu. Þetta á við um ýmis kynferðisafbrot, meiri háttar líkamsárásir eða ólögmæta frelsisskerðingu.
Um 11. gr.
Í 190. gr. almennra hegningarlaga, sem vísað er til í greininni, er fjallað um sifjaspell og í 194. gr. er fjallað um nauðgun. Lagt er til að í þessum tilvikum báðum verði skylt að kveðja til réttargæslumann fyrir brotaþola.
Í 195. – 203. gr. og í 206. gr. alm. hegningarlaga er fjallað um ýmis önnur kynferðisafbrot. Er þá heimilt að kveðja til réttargæslumann fyrir brotaþola ef hann ber fram ósk um það og skal brotaþoli inntur eftir því hvort hann óski eftir réttargæslumanni. Það er hins vegar látið í vald rannsóknaraðila eða dómara að meta þörfina á slíku, en hún er mismunandi eftir atvikum.
Í 218. gr. er fjallað um meiri háttar líkamsárás og 226. gr. um ólögmæta frelsisskerðingu og er þá rannsóknaraðila eða dómara heimilt á sama hátt að kveðja til réttargæslumann fyrir brotaþola.
Um 12. gr.
Lagt er til að kostnaður við réttargæslu brotaþola verði greiddur úr ríkissjóði, en endurkrafinn fyrir dómi ef mál leiðir til ákæru eða ef heimilað er að ljúka því með dómsátt. Með þessu ákvæði er brotaþola spöruð fyrirhöfn af innheimtu réttargæslukostnaðarins hjá þeim sem brotið framdi og ríkissjóður tekur á sig ábyrgð á greiðslu hans.
Um V. kafla.
Ákvæði um gjafsókn og gjafvörn í XI. kafla laga nr. 85/1936, um meðferð einkamála í héraði, verður að teljast að mörgu leyti úrelt og er hér leitast við að endurskoða þau í ljósi breyttra aðstæðna. Lagt er til að veiting gjafsóknarleyfis sé miðuð við efnahag umsækjanda eins og nú er aðalreglan, en formlegri reglur verði settar um tekju - og eignarmörk. Einnig skal taka tillit til annarra atriða og er lagt til að sérstök nefnd verði sett á fót til þess að veita umsagnir um gjafsóknarbeiðnir og til að móta starfsreglur um veitingu gjafsóknarleyfa.
Felld eru niður ákvæði um gjafsókn til kirkna, skóla, sjúkrahúsa, hreppsfélaga og fleiri aðila og um skilyrði fyrir gjafsóknarleyfi til erlendra ríkisborgara.
Um 13. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 14. gr.
Hér er um nýmæli að ræða, en lagt er til skipuð verði þriggja manna nefnd til fjögurra ára í senn sem veita skal umsögn um gjafsóknarbeiðnir og móta starfsreglur um veitingu gjafsóknarleyfa. Einn nefndarmanna skal skipaður samkvæmt tilnefningu Lögmannafélags Íslands.
Um 15. gr.
Lagt er til að ráðherra veiti gjafsóknarleyfi samkvæmt umsókn þar að lútandi og að fenginni umsögn gjafsóknarnefndar. Nefndin á m.a. að gefa umsögn um hvort málstaður umsækjanda gefi nægilegt tilefni til málsóknar og að efnahag hans sé svo háttað að kostnaður málsins verði honum fyrirsjáanlega ofviða. Um fyrrnefnda atriðið segir í núgildandi ákvæðum, „að athuga skuli málstað umsækjanda eftir föngum, áður en gjafsókn er veitt“ og í samsvarandi dönskum ákvæðum segir m.a. um skilyrði fyrir gjafsókn að veita megi gjafsókn ef umsækjandi „skönnes at have rimelig grund til at före proces.“ Um síðarnefnda atriðið mun nefndin fara eftir tekju - og eignarmörkum sem ákveðin verða í reglugerð og lagt verður mat á önnur þau atriði sem þar eru talin.
Um 16. gr.
Hér er fjallað um heimild ráðherra til að veita gjafsókn af sérstöku tilefni, enda þótt ákvæðum 15. gr. sé ekki fullnægt. Þar koma einkum til álita mál þar sem tekist er á um grundvallaratriði við lagatúlkun, fjallað er um mikilvæga hagsmuni almennings eða mál hefur verulega þýðingu fyrir atvinnu - og félagslega stöðu umsækjanda. Í slíkum tilvikum kann að vera ósanngjarnt að umsækjandi leggi í mikinn kostnað vegna málsins og kemur því til greina að veita gjafsókn sem bæði getur náð til alls kostnaðar eða verið takmörkuð við ákveðna fjárhæð, sbr. 1. mgr. 17. gr. Lagt er til að leitað sé umsagnar gjafsóknarnefndar um útgáfu gjafsóknarleyfis í slíku tilviki.
Um 17. gr.
Hér er kveðið á um að gjafsóknarleyfi skuldbindi ríkissjóð til greiðslu málskostnaðar skv. 18. gr. eftir því sem kveðið er á í dómi, að svo miklu leyti sem fjárskuldbinding ríkissjóðs er ekki takmörkuð í leyfinu. Ef gjafsóknarhafi vinnur mál sitt fyrir héraðsdómi, en gagnaðili skýtur málinu til Hæstaréttar nær gjafsóknarleyfið einnig til kostnaðar við málsvörn og hugsanlega höfðun gagnsakar fyrir Hæstarétti. Tapi gjafsóknarhafi hins vegar máli sínu fyrir héraðsdómi nær gjafsóknarleyfi hans ekki til áfrýjunar til Hæstaréttar. Í slíku tilviki þarf að sækja um gjafsóknarleyfi á nýjan leik. Þetta er sama regla og beitt hefur verið hér á landi og sem í gildi er í nágrannaríkjunum, t.d. í Danmörku.
Loks er í greininni ákvæði um að í gjafsóknarleyfi skuli skýrt koma fram til hvaða máls leyfi taki, hver sé lögmaður leyfishafa og fyrir hvaða dómstigi málið sé rekið.
Um 18. gr.
Í þessari grein er nánar fjallað um innihald gjafsóknarleyfis, þ.e. til hvaða kostnaðar það taki ef ekki eru gerðar sérstakar takmarkanir í leyfinu.
Gjafsóknarleyfi nær til aðalmáls og aukamála í sambandi við það, svo sem vitna - og matsmála, auk lögbanns - og kyrrsetningargerða og fullnustugerða, nema takmarkanir hafi verið gerðar í leyfinu. Greinin hindrar ekki að veitt sé sérstakt gjafsóknarleyfi í kærumáli, þ.e. ef ákvörðun eða úrskurður eru kærð til æðra dóms.
Gjafsóknarleyfi fellur ekki niður við andlát leyfishafa, en afturkalla má gjafsóknarleyfi við aðstæður sem raktar eru í greininni.
Gjafsóknarleyfi nær einungis til þess kostnaðar sem gjafsóknarhafi hefur haft af málarekstri sínum, en haggar í engu skyldu hans til greiðslu málskostnaðar til gagnaðila síns, en um þetta atriði hefur stundum ríkt misskilningur.
Um VI. kafla.
Um 19. gr.
Hér er fjallað um reglugerðarheimild og lagt til að ákvæði verði í reglugerð um framreikning viðmiðunarfjárhæða í samræmi við verðbreytingar í þjóðfélaginu. Skal auglýsa ný fjárhæðarmörk í janúar ár hvert.
Um 20. gr.
Lagt er til að lög þessi taki gildi 1. janúar 1991 að undanteknum III. kaflanum.
Ljóst er að erfitt verður að áætla kostnað af framkvæmd III. kaflans og því er lagt til að hann taki gildi 1. júní 1992. Áætlun um kostnað af framkvæmd III. kaflans á árinu 1992 verður ónákvæm eðli málsins samkvæmt, en við gerð fjárlaga ársins 1993 yrði hægt að styðjast við reynslu nokkurra mánaða af framkvæmd hans.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Við gildistöku laga nr. 92/1989, um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, fellur niður starfsheiti bæjarfógeta og borgarfógeta í Reykjavík, en sýslumaður verður sameiginlegt starfheiti. Fram til þess tíma verður að taka tillit til núverandi heita á embættum bæjar - og borgarfógeta.
Fylgiskjal.
Fyrirkomulag lögfræðiaðstoðar við almenning
í nokkrum nágrannaríkjum.
Reglur um réttaraðstoð við tekjulítið fólk er að finna í flestum nágrannaríkjum okkar. Rétt þykir að gefa hér stutt yfirlit um opinbera réttaraðstoð á öðrum Norðurlöndum og í Bretlandi.
Danmörk.
Ákvæði um réttaraðstoð fyrir efnalítið fólk hafa verið lögfest í Danmörku frá árinu 1969. Núgildandi ákvæði byggja á því að ríkissjóður greiði fyrir þjónustu sem sjálfstætt starfandi lögmenn veita og er gerður greinarmunur á venjulegri réttaraðstoð (almindelig retshjælp) og aukinni réttaraðstoð (udvidet retshjælp) á sama hátt og gert er í frumvarpi þessu.
Þeir lögmenn, sem veita réttaraðstoð, þurfa að hafa hlotið sérstaka viðurkenningu til þess að taka slíka aðstoð að sér. Réttaraðstoðin er takmörkuð við sérstaka málaflokka, þ.e. persónumálefni, sifjamálefni, erfðarétt, bætur utan samninga sem ekki eru tengdar atvinnurekstri þess sem aðstoðar leitar, tryggingamálefni, mál vegna húsaleigusamninga, vinnusamninga og orlofsmál.
Í Danmörku eru einnig reglur um opinbera aðstoð við ráðgjafarskrifstofur sem einstakir opinberir aðilar eða félagasamtök koma á fót í því markmiði að sinna fólki sem á rétt til opinberrar aðstoðar á þessu sviði. Þessar skrifstofur veita einungis ráðgjöf og er ekki skilyrði að ráðgjafarnir séu lögmenn. Yfirleitt eru þeir þó lögfræðingar, laganemar og í sumum tilvikum félagsráðgjafar sem veita slíka ráðgjöf.
Danska lögmannafélagið hefur einnig sett upp vaktir lögmanna sem veita almenna ráðgjöf á sama hátt og gert er í II. kafla frumvarps þessa. Ráðgjöfin er ókeypis fyrir þiggjendur og felst hún einkum í að greina vandamál og gefa leiðbeiningar um hvert skuli leita um lausn á því.
Þeir sem njóta venjulegrar réttaraðstoðar í Danmörku greiða 1 / 4 kostnaðar, en þeir sem njóta aukinnar réttaraðstoðar greiða helming kostnaðar á sama hátt og gert er ráð fyrir í frumvarpi þessu.
Finnland.
Í Finnlandi tóku reglur um almenna réttaraðstoð fyrst gildi 1. september 1973. Hið opinbera hefur komið á fót lögfræðiskrifstofum til þess að láta í té opinbera réttaraðstoð. Sveitarfélög sjá um rekstur skrifstofanna, en ríkissjóður greiðir 50 – 90% af rekstrarkostnaði þeirra. Aðstoð starfsfólks skrifstofanna felst fyrst og fremst í almennri ráðgjöf. Fólk, sem óskar eftir aðstoð, þarf að snúa sér til lögfræðiskrifstofu hins opinbera á heimabyggð sinni. Sé hins vegar engin slík skrifstofa starfandi má snúa sér til sjálfstætt starfandi lögmanns.
Tekjumörk þeirra sem rétt hafa til aðstoðarinnar eru misjöfn eftir sveitarfélögum. Ráðstöfunartekjur eru lagðar til grundvallar, þ.e. föst útgjöld heimilis vegna tiltekinna kostnaðarliða eru dregin frá brúttótekjum.
Svíþjóð.
Réttarreglur um opinbera réttaraðstoð í Svíþjóð tóku fyrst gildi 1. júlí 1973. Í Svíþjóð er réttaraðstoðin veitt að hluta af sjálfstætt starfandi lögmönnum gegn greiðslu frá hinu opinbera en að hluta er henni sinnt af sérstökum skrifstofum þar sem lögmenn starfa á föstum launum og reknar eru af hinu opinbera. Svíar skilja ekki á milli réttaraðstoðar í dómsmálum og lögfræðistoðar utan réttar. Sá sem nýtur aðstoðarinnar getur sjálfur valið hvort hann leitar til sjálfstætt starfandi lögmanns eða til lögmannsstofu hins opinbera. Svíar hafa sérstök ákvæði um aðstoð í málum sem lúta að röskun á friðhelgi einkalífs og í sifjamálum. Þeir sem aðstoðar njóta samkvæmt þessum sérákvæðum njóta ekki jafnframt aðstoðar samkvæmt hinum almennu reglum. Sama má segja um sakborninga í refsimálum, en þeir njóta aðstoðar samkvæmt ákvæðum í lögum um meðferð opinberra mála.
Tekjumörk þeirra, sem rétt eiga til almennrar réttaraðstoðar í Svíþjóð, eru áttfaldur grunnframfærslueyrir sænsku almannatrygginganna.
Noregur.
Í Noregi tóku lögin um „fri rettshjelp“ gildi árið 1980. Samkvæmt þeim greiðir ríkissjóður að hluta til eða að fullu réttaraðstoð til handa efnalitlu fólki. Aðstoðin er fyrst og fremst látin í té af starfandi lögmönnum. Lögmönnum er skylt að benda efnalitlu fólki á rétt sinn í þessu efni. Ríkissjóður greiðir þóknun fyrir aðstoðina eftir ákveðnum reglum sem settar eru með reglugerð. Aðstoðin er fyrst og fremst veitt einstaklingum, en þó má veita hana lögaðilum ef sérstaklega stendur á.
Miðað er við ákveðin tekju - og eignarmörk fyrir þá sem notið geta aðstoðarinnar og eru tekjumörkin ákveðið margfeldi af grunnfjárhæð almannatrygginga.
Um opinbera réttaraðstoð á Norðurlöndum.
Í Noregi var reynslan sú þremur árum eftir að farið var að veita opinbera réttaraðstoð að sex íbúar af hverjum 1.000 nutu hennar á ári. Um svipað leyti nutu 13 íbúar af hverjum 1.000 opinberrar réttaraðstoðar í Svíþjóð og 14 af hverjum 1.000 íbúum í Finnlandi. Í öllum ríkjunum eru sifja - og erfðamál þeir málaflokkar sem algengast er að beðið sé um leiðsögn í.
Á Norðurlöndum tíðkast að opinber réttaraðstoð sé veitt af starfandi lögmönnum og einnig að hún sé veitt af sérstökum lögfræðiskrifstofum sem reknar eru af hinu opinbera.
Aðstoðin er fyrst og fremst veitt til einstaklinga sem hafa tekjur og eignir undir ákveðnum mörkum, en mörkin eru mismunandi eftir ríkjum.
Bretland.
Árið 1973 var komið á fót opinberri lögfræðiráðgjöf fyrir almenning í Bretlandi. Byggjast þau á lögum, sem nefnast „Legal Aid Act“. Skiptast þau í tvo kafla og fjallar annar þeirra um ráðgjöf og aðstoð, en hinn kaflinn fjallar um gjafsókn. Samkvæmt þeim getur efnalítið fólk fengið réttaraðstoð ýmist endurgjaldslaust eða gegn litlu endurgjaldi.
Sjálfstætt starfandi lögmenn láta ráðgjöfina í té, en einnig eru dæmi þess að hún sé veitt í sérstökum lögfræðistofum (Law Centers).
Aðstoðin er fólgin í munnlegum leiðbeiningum, bréfaskriftum, samningu alls konar skjala og löggerninga og aðstoð við að koma á sátt í deilumálum sem ekki hafa verið borin undir dómstóla.
Lögmaður, sem réttaraðstoðina veitir, reiknar sjálfur út á sérstöku eyðublaði, ráðstöfunartekjur umsækjanda. Eigi umsækjandi rétt á ráðgjöf gegn greiðslu hluta kostnaðar ber honum að inna strax sinn hluta af hendi til lögmannsins. Lögmaður sendir síðan reikning til viðkomandi yfirvalds. Í upphafi var það breska lögmannafélagið sem sá um yfirstjórn þessara mála, en yfirstjórnin hefur nú verið flutt til stjórnsýslu hins opinbera.
Talið er að helmingur af íbúum Bretlands eigi rétt á réttaraðstoð þar eð tekjur þeirra séu neðan viðmiðunarmarka. Kostnaður hins opinbera er og mjög hár og er talið að á árinu 1989 hafi hann numið a.m.k. 500 milljónum sterlingspunda. Viðmiðunarmörkin hafa nú verið endurskoðuð og reynt hefur verið að draga úr þessum kostnaðarlið með uppstokkun á stjórnsýslu réttaraðstoðarinnar. Um 59% þeirra sem njóta opinberrar réttaraðstoðar í Bretlandi fá aðstoð vegna sifjamála.