Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 70 . mál.


Sþ.

72. Tillaga til þingsályktunar



um kynningu á vörum frá vernduðum vinnustöðum.

Flm.: Skúli Alexandersson, Margrét Frímannsdóttir, Stefán Guðmundsson,


Karvel Pálmason, Kristín Einarsdóttir, Salome Þorkelsdóttir,


Hulda Jensdóttir.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hún beiti sér fyrir sérstöku átaki til vandaðrar kynningar á vörum frá vernduðum vinnustöðum. Sömuleiðis að ríkisstjórnin sjái fyrir því að ríkisstofnanir og opinber fyrirtæki beini innkaupum sínum í sem ríkustum mæli að hinum fjölbreyttu vörum sem þessir vinnustaðir framleiða og hafa á boðstólum. Þannig verði rekstrargrundvöllur verndaðra vinnustaða best styrktur, atvinna fatlaðra betur tryggð og beinna styrkveitinga ríkisvaldsins ekki þörf í eins ríkum mæli.

G r e i n a r g e r ð .


     Í skýrslu, sem unnin var á vegum félagsmálaráðuneytisins og lögð var fram í júní 1990, er sagt að hægt sé að skipta vernduðum vinnustöðum í þrjá flokka eftir markmiðum:
     Þjálfunar - og endurhæfingarstaðir.
     Langtímavinnustaðir fyrir fólk sem á í erfiðleikum með að fá vinnu á almennum markaði.
     Báðir fyrri þættir saman.
     Þessir vinnustaðir eru orðnir allmargir, eins og fram kemur í meðfylgjandi fylgiskjali, og verkefni þeirra og framleiðsla eru fjölbreytt.
     Margir aðilar í þjóðfélaginu hafa not fyrir þá vöru sem þessi fyrirtæki framleiða. Ganga má út frá því sem vísu að fyrirtæki jafnt sem einstaklingar mundu að öllu jöfnu velja frekar framleiðslu verndaðra vinnustaða en t.d. innflutta vöru sömu tegundar til sinna þarfa eða rekstrar.
     Mikil nauðsyn er á góðri og vandaðri kynningu sameiginlega á möguleikum þessara fyrirtækja til að uppfylla með framleiðslu sinni ýmsar þarfir opinberra aðila, einkafyrirtækja og almennings. Ekkert er eðlilegra en að slík kynning sé skipulögð og kostuð af ríkissjóði.
     Ótvíræð skylda ríkisvaldsins er sú að koma sem best til móts við verndaða vinnustaði, m.a. með innkaupum frá þeim svo sem framast má verða.
     Á ári hverju er varið talsverðum fjármunum í beina styrki til að standa undir rekstri þessara vinnustaða. Það er því beinn hagur hins opinbera að stuðla að betri rekstri fyrirtækjanna með því að vinna að aukinni sölu á framleiðsluvörum þeirra á þann hátt sem lagt er til með þessari þingsályktunartillögu.

Fylgiskjal.
.......



Verndaðir vinnustaðir. Framleiðsla og starfsmenn.


     Blindravinnustofan Hamrahlíð 17, Reykjavík.
          Framleiðir bursta af ýmsum gerðum og tágakörfur. Fastráðnir fatlaðir starfsmenn eru 12 talsins og í tímabundnu starfi eru 3.
     Vinnustofan Gagnheiði 23, Selfossi.
          Framleiðir handofnar gólf - og veggmottur, leirvörur. Einnig ýmiss konar saumaskapur og lítils háttar trésmíði.
     Örvi, Kársnesbraut 110, Kópavogi.
          Framleiðir plastumbúðir, einnota plastsvuntur, plastpakkningar og blister - pakkningar. Settar saman rafmagnsvörur. Almenn pökkun. Prjónavörur og lítil fataverslun. Fastráðnir starfsmenn eru 4, en aðrir 23.
     Ás, vinnustofa Styrktarfélags vangefinna, Brautarholti 6, Reykjavík. Framleiðir ýmsar gerðir heimilisklúta, handklæði og bleiur, og svo er pökkun ýmiss varnings.
     Stólpi, Iðngörðum, Egilsstöðum.
          Ábót, uppsetning á línu, hæðarflísar, aðvörunarsnúrur, hækilbönd og skilti.
     Vinnustofur Öryrkjabandalags Íslands, Hátúni 10, Reykjavík.
          Örtækni: Samsetning og viðgerðir fyrir Landssíma Íslands, framleiðsla og samsetning tölvukapla og rafeindabúnaðar. Saumastofa: Ýmis fatnaður. Fastráðnir eru 20. Tímabundið eru ráðnir 5.
     Bergiðjan, Víðihlíð, Kleppsvegi, Reykjavík.
          Margbreytileg framleiðsla: Garðhúsgöng, trétröppur, blómakassar, gangstéttarhellur, kantsteinar, útiljósaseríur. Ýmis fatnaður á saumastofu. Enginn er fastráðinn en starfsmenn eru 17.
     Bergiðjan, Iðju - og starfsþjálfun, Kleppsvegi, Reykjavík.
          Garðhúsgögn, vinnutröppur, póstkassar, kökuform, tjaldhælar o.fl. Saumastofa, m.a. í framleiðslu rúmfatnaðar fyrir Ríkisspítala. Starfsmenn eru 12.
     Múlalundur, Hátúni 10c, Reykjavík.
          Skrifstofuvörur, hulstur fyrir spítala, borðdagatöl, myndaalbúm, lausblaðamöppur. Fastráðnir eru 59. Mismargir starfsmenn tímabundið.
     Verndaður vinnustaður, Dalbraut 10, Akranesi.
          Útiljósaseríur, lyfjaskápar, plastbox pökkuð, hnýtt ábót, merkingar á rafmagnsleiðslur og dósamóttaka. Starfsmenn eru 9.
     Iðjulundur, Hrísalundi 1, Akureyri.
          Vinnuvettlingar, prjónavettlingar, heimilisklútar, mjólkursíur, kerti, rúmfatnaður, diskaþurrkur, samsetning og pökkun. Fastráðnir eru 40. Tímabundið eru ráðnir 2 starfsmenn.
     Heimaey, Faxastíg 46, Vestmannaeyjum.
          Kerti af ýmsum gerðum. Fastráðnir starfsmenn eru 12. Án fastráðningar eru 8 starfsmenn.
     Reykjalundur, Mosfellsbæ.
          Umbúðafötur fyrir efna - og matvælaiðnað, raftengi, sauðfjármerki og búsáhöld. Starfsmenn ráðnir tímabundið í verndaða vinnu eru 24.
     Plastiðjan Bjarg, Bugðusíðu 1, Akureyri.
          Raflagnaefni úr plasti. Starfsmenn eru 2.