Ferill 80. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 80 . mál.


Ed.

82. Frumvarp til laga



um endurgreiðslu á gjaldi af erlendum lánum vegna skipasmíða hér á landi.

Flm.: Halldór Blöndal.



1. gr.


     Gjald af erlendum lánum, sem tekin voru til skipasmíða hér á landi samkvæmt lögum nr. 10/1988, um ráðstafanir í ríkisfjármálum, sbr. lög nr. 101/1988 og lög nr. 51/1989, skulu endurgreiðast úr ríkissjóði þegar í stað.

2. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi.

G r e i n a r g e r ð .


     Frumvarp þetta var flutt á síðasta þingi en var fellt. Nauðsyn þess að fá það samþykkt er eigi að síður jafnbrýn.
     Frá 10. mars 1988 til 1. júní 1989 var greitt sérstakt gjald af erlendum lántökum, þar á meðal lánum til skipasmíða hér á landi. Þó lá fyrir að skipasmíðar erlendis nutu opinbers stuðnings með beinum og óbeinum hætti.
    Í Slippstöðinni á Akureyri hefur 250 tonna fiskiskip verið í smíðum. Með hliðsjón af framansögðu er óeðlilegt og óviðunandi að sérstakt gjald sé greitt í ríkissjóð af lánum til þeirrar smíði. Verð skipsins er sambærilegt við verð sumra þeirra skipa sem keypt hafa verið ný til landsins.