Ferill 93. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 93 . mál.
Nd.
96. Frumvarp til laga
um afnám laga nr. 83/1989, um Þjóðarbókhlöðu og endurbætur menningarbygginga.
Flm.: Hreggviður Jónsson, Ingi Björn Albertsson,
Kristinn Pétursson, Ellert Eiríksson.
1. gr.
Lög nr. 83 1. júní 1989, um Þjóðarbókhlöðu og endurbætur menningarbygginga, falla úr gildi.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
G r e i n a r g e r ð .
Þjóðarbókhlöðuskattinn á að leggja niður. Með álagningu hans er fólki freklega mismunað. Skatturinn leggst hvað þyngst á einhleypinga og þá sem hafa sýnt ráðdeild og sparsemi. Það er óverjandi að mönnum skuli refsað fyrir að fara vel með fjármuni sína og eignir. Þeim sem lagt hafa áherslu á að eiga skuldlaust íbúðarhúsnæði er nú hegnt fyrir það, en það er í flestum tilfellum grundvöllur eignarskatta almennings. Þá er skatturinn miklu hærri á íbúum Reykjaness og Reykjavíkur eða 79,1% af álagningu ársins 1989 (tölur fyrir 1990 liggja ekki fyrir) sem byggist fyrst og fremst á miklu hærra fasteignamati íbúða á því svæði. Framlög til Þjóðarbókhlöðunnar og endurbóta á menningarbyggingum á að greiða eins og önnur útgjöld úr ríkissjóði án sérstakrar skattlagningar.
Athyglisvert er að eignir þeirra hjóna, sem greiða þjóðarbókhlöðuskattinn, bera 132 millj. kr. lægri skatt en ef eignirnar væru í eigu einhleypinga. Hver einhleypingur greiðir 10.625 kr. áður en þessi skattur leggst á sambærilega eign hjóna. Jafnframt hefur komið í ljós að þjóðarbókhlöðuskatturinn hefur ekki runnið til bókhlöðunnar eins og lög mæla fyrir um. Ekki hafa verið hafðir uppi neinir fyrirvarar við afgreiðslu lánsfjárlaga, eins og gert er í „þrátt fyrir“ - kaflanum. Það verður einnig að telja álitamál hvort skattgreiðendur eigi ekki endurkröfurétt á ríkissjóð fyrir þann hluta sem ekki hefur runnið beint til Þjóðarbókhlöðunnar.
Innheimt hefur verið samkvæmt þessum lögum í ríkissjóð sem hér segir:
Repró.