Ferill 113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 113 . mál.
Sþ.
117. Tillaga til þingsályktunar
um reiðvegaáætlun.
Flm.: Guðmundur G. Þórarinsson, Jón Kristjánsson, Valgerður Sverrisdóttir,
Páll Pétursson, Alexander Stefánsson, Ólafur Þ. Þórðarson,
Guðni Ágústsson, Jóhann Einvarðsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta í samvinnu við samtök hestamanna og sveitarfélaga gera reiðvegaáætlun. Áætlun þessi skal gerð til fjögurra ára í senn.
Samgönguráðherra skal í því skyni skipa nefnd er hafi það hlutverk að vinna reiðvegaáætlun og endurskoða hana reglulega.
Í starfi sínu taki nefndin m.a. mið af eftirfarandi atriðum:
G r e i n a r g e r ð .
Þingsályktun þessi er flutt samhliða tveimur frumvörpum til laga er bæði lúta að gerð reiðvega. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á vegalögum þar sem kveðið er á um að Vegagerð ríkisins skuli sjá um gerð og viðhald reiðvega samkvæmt sérstakri áætlun. Hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjáröflun til vegagerðar en þar er gert ráð fyrir að leggja á sérstakt hóffjaðragjald til að afla fjár til reiðvegagerðar.
Þessi þingsályktunartillaga, sem hér er flutt, hefur það hlutverk að fela samgönguráðherra í samvinnu við samtök hestamanna og sveitarfélaga að láta gera reiðvegaáætlun og forgangsraða verkefnum, en Vegagerðin vinni síðan í samræmi við þá reiðvegaáætlun.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að hestamennska nýtur sívaxandi vinsælda og hestaeign fer vaxandi. Ekki verður hjá því komist að taka tillit til ríðandi manna í umferðinni en aukin bílaumferð á þjóðvegum landsins gerir það nauðsynlegt að það sé gert með skipulegum hætti.
Árið 1982 var gert samkomulag milli Landssambands hestamannafélaga og Vegagerðar ríkisins um gerð reiðvega. Það samkomulag er fylgiskjal með frumvarpi um breytingu á vegalögum. Reynsla af þessu samkomulagi hefur ekki orðið nægilega góð og nauðsynlegt er að skýra málin frekar og koma þeim í fast horf. Bæði er að fé til reiðvegagerðar hefur verið mjög af skornum skammti, sem og að nauðsynlegt er að kveða skýrar á í lögum um hver beri veg og vanda af reiðvegagerð, hvernig fjár sé aflað til hennar og hverjir vinni áætlun um reiðvegagerð og ákveði forgang verkefna.
Óhjákvæmilegt er að umferð ríðandi manna verði í raun viðurkennd sem hluti af samgöngum landsmanna. Til þess að þetta sé unnt verður að taka tillit til ríðandi manna við skipulagningu vegakerfis landsins, sérstaklega þarf að hafa hliðsjón af staðsetningu hesthúsahverfa, skeiðvalla, hrossabúa, hagagöngu, gisti - og veitingastaða og útivistar - og ferðamannastaða.
Mikilvægt er einnig að friðlýsa fornar reiðleiðir og halda þeim við. Með þeim hætti er varðveittur ákveðinn þáttur í menningarsögu landsins. Mikilvægt er einnig í þessu sambandi að tryggja að gróður spillist ekki og sjá til þess að saman geti farið vernd og notagildi. Hestamennska og hestaíþróttir eru sem fyrr segir mjög vaxandi. Íslenski hesturinn er í auknum mæli orðinn útflutningsvara en jafnframt koma erlendir ferðamenn hingað í auknum mæli til hestamannamóta og ferða á hestum. Fram hjá þeirri staðreynd geta Íslendingar ekki litið og þurfa að bregðast rétt við enda getur hesturinn einmitt orðið mikilvægur þáttur í uppbyggingu ferðamannaiðnaðar í landinu í nánustu framtíð. Í því sambandi er auðvitað mikið starf óunnið og margt sem þarf að hafa í huga. Eigendur veitingastaða þurfa víða að gera hestamönnum kleift að njóta þeirrar þjónustu sem þeir hafa á boðstólum. Til þess þurfa þeir að koma upp góðri hrossarétt, vel mölborinni og með skjólgirðingu sem er t.d. 1 1 / 2 metri á hæð. Aðstaða þarf að vera til að brynna hestunum og æskilegt að hey geti verið til sölu. Við gististaði, tjaldstæði og orlofsbúðir þarf að hafa aðstöðu til hagbeitar, þar þurfa að vera hrossaréttir og geymslur fyrir reiðtygi.
Ferðaþjónusta bænda þarf að geta veitt hestamönnum fyrirgreiðslu af ýmsu tagi, ekki aðeins geta leigt mönnum hross heldur einnig haft hagbeit til sölu. Sveitarstjórnir og upprekstrarfélög eiga mörg góða skála á fjöllum, skála sem nýta mætti betur og leigja ferðafólki og gætu fallið vel inn í ferðir ríðandi manna um landið. Þannig mætti hugsa sér eins konar net náttstaða á hálendinu en hey þyrfti að vera til sölu á sem flestum stöðum svo að gróður spillist ekki.
Við gerð reiðvega þarf að hafa í huga að vegir, sem hægt er að fara allt árið, eru nauðsynlegir í nágrenni hesthúsabyggða. Slíkir vegir eru eðlilegt viðfangsefni viðkomandi sveitarfélaga, hestamanna og Vegagerðar. Talsvert aðrar kröfur þarf að gera til slíkra vega en þeirra sem aðeins eru notaðir stuttan tíma á ári vegna þess að umferð getur orðið mikil á takmörkuðu svæði vetur og vor þegar blautt er um. Slíkir vegir þurfa að falla vel inn í skipulag en gera má ráð fyrir að mest álag sé á þessa vegi næst hesthúsunum, 5 – 10 km umhverfis þau, en fjær dreifist álagið verulega.
Vel má hugsa sér að reiðvegir í þéttbýli geti verið meðfram þjóðvegum eða lagðir sérstaklega um útivistarsvæði, en áherslu verður að leggja á að friða alla reiðvegi fyrir umferð vélknúinna farartækja og kveða þarf skýrt á um umferðarrétt með merkingum þar sem reiðmenn þurfa að fara þvert á veg. Víða eru gömlu malarvegirnir ágætir reiðvegir þegar þeir eru opnir. Við gerð reiðvega þarf sérstaklega að gera ráð fyrir áningarstöðum, helst með því móti að víkja megi spölkorn frá vegi.
Árið 1986 fluttu þingmennirnir Páll Pétursson og Ólafur Þ. Þórðarson tillögu til þingsályktunar um áætlun um gerð reiðvega. Sú þingsályktunartillaga er fylgiskjal með þessari. Tillaga þessi varð ekki útrædd á Alþingi.
Fylgiskjal.
Tillaga til þingsályktunar um áætlun um reiðvegagerð.
(109. löggjafarþing, 82. mál.)
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd er geri áætlun um reiðvegagerð um landið. Nefndin skal skipuð einum fulltrúa tilnefndum af Vegagerð ríkisins, einum tilnefndum af Landssambandi hestamanna, einum tilnefndum af skipulagsstjóra ríkisins og tveimur án tilnefningar.
Nefndin meti hver þörf er á nýjum reiðvegum, hvar varðveita skal gamla reiðvegi og hvar er heppilegast að reiðvegir liggi þannig að hestamönnum sé greið umferð um landið.
Nefndin skili áætluninni fyrir haustið 1987 þannig að framkvæmdir geti hafist samkvæmt henni sumarið 1988.
Greinargerð þingsályktunartillögunnar hljóðar svo:
Hestamennska nýtur sívaxandi vinsælda og fjöldi fólks sækir sálubót og hreysti í samfélag við hesta og til ferðalaga á hestum. Með aukinni bílaumferð og bættum akvegum er umferð ríðandi fólks um marga þjóðvegi landsins orðin stórhættuleg og jafnvel ómöguleg. Á undanförnum árum hefur verið unnið stórvirki í vegagerð en umferð hestamanna hefur ekki verið sinnt nema að allt of litlu leyti. Á árinu 1985 var varið 400 þús. kr. til reiðvegagerðar og 1986 einni milljón króna. Þetta er auðvitað allsendis ófullnægjandi. Reiðvegagerð þarf ekki að vera dýr, sérstaklega ef hún er unnin með fyrirhyggju. Vegagerðin hefur sums staðar gætt þess við frágang vega, fyrir atbeina Landssambands hestamanna, að reiðmönnum væri fær leið meðfram vegum. Þetta hefur hins vegar ekki alls staðar verið gert og af því skapast slysahætta og leiðindi.
Skynsamlegast er að gera áætlun um það hver þörf sé fyrir nýja reiðvegi um landið, hvar beri að varðveita gamla reiðvegi og hvar heppilegast er að reiðvegir liggi. Þannig mundu fjármunir og verktækni nýtast betur en ella og óhjákvæmilegt er að leggja stóraukna áherslu á reiðvegagerð.
Íslendingar hafa ferðast á hestum um landið frá upphafi Íslands byggðar; óhæfa er að gera þeim það ómögulegt nú. Þess ber og að gæta að ríkisvaldið ver miklu fé til tómstunda og íþróttamála og einnig til lista. Hestamennska er hin göfugasta tómstundaiðja og auk þess bæði íþrótt og list þannig að eðlilegt er að verja allnokkru almannafé til þess að auðvelda fólki iðkun hestamennsku.