Ferill 170. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 170 . mál.


Sþ.

188. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um vinnu að frumvarpi um fjárgreiðslur úr ríkissjóði.

Frá Geir H. Haarde.



    Hvað líður vinnu á vegum fjármálaráðuneytisins að endurskoðun frumvarps um fjárgreiðslur úr ríkissjóði o.fl. sem á síðasta þingi var afgreitt með rökstuddri dagskrá að tillögu fjárhags - og viðskiptanefndar neðri deildar „í trausti þess að unnið verði að málinu í sumar“ á vegum ríkisstjórnarinnar?