Ferill 182. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 182 . mál.


Sþ.

205. Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um kaup Húsnæðisstofnunar ríkisins á íbúðum á nauðungaruppboði.

Frá Guðmundi Ágústssyni.



     Hvaða sjónarmið eru látin ráða við uppgjör á kaup- og söluverði þegar Húsnæðisstofnun ríkisins kaupir eignir á nauðungaruppboði? Heldur stofnunin mismuninum hjá sér, greiðir hún uppboðsþolanum mismuninn eða lætur hún aðra lánadrottna uppboðsþolans njóta þess að mismunur verður?
     Eru mörg dæmi þess að Húsnæðisstofnun ríkisins hafi hagnast á því að kaupa eignir á nauðungaruppboði?
     Fer skoðun félagsmálaráðherra saman við skoðun stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins í málum af þessu tagi?