Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 191 . mál.
Sþ.
225. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um greiðslur fyrir ómælda yfirvinnu.
Frá Stefáni Valgeirssyni.
Tíðkast enn að starfsmenn ríkisins og ríkisstofnana fái greidd laun fyrir svokallaða „óunna“ eða „ómælda“ yfirvinnu? Ef svo er, hvert er hlutfall slíkra greiðslna á samningsbundin laun?
Hvaða launaflokkar fá slíkar greiðslur?
Hver er heildarupphæð slíkra greiðslna frá ríkinu?
Hverjar eru heildarlaunagreiðslur ríkisins fram yfir samningsbundnar launagreiðslur samkvæmt kjarasamningum?