Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 206 . mál.


Ed.

259. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Flm.: Salome Þorkelsdóttir.



1. gr.


     Við 1. mgr. 12. gr. laganna bætist nýr töluliður svohljóðandi:
    Sala á barnabílstólum, bílpúðum sem festir eru með bílbeltum eða öðrum viðurkenndum öryggisbúnaði fyrir börn í bifreiðum, svo og sala á öryggishjálmum fyrir reiðhjóla- eða vélhjólaakstur.

2. gr.


     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1991.

G r e i n a r g e r ð .


    Tilgangur þessa frumvarps er að stuðla að verðlækkun á öryggisbúnaði fyrir börn í bifreiðum og fyrir þá sem aka um á reiðhjólum og vélhjólum með því að fella niður virðisaukaskatt á þessum búnaði sem nemur 24,5%. Sannað er að slíkur öryggisbúnaður getur orðið til þess að koma í veg fyrir alvarleg slys hvort sem um er að ræða börn í bifreiðum og á reiðhjólum eða í vélhjólaakstri.
    Frumvarp þetta er flutt samhliða frumvarpi um breytingu á umferðarlögum og vísast að öðru leyti til greinargerðar með því frumvarpi.