Ferill 148. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 148 . mál.
Ed.
263. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988, sbr. lög nr. 76/1989 og 70/1990.
Frá félagsmálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Grétar Guðmundsson, aðstoðarmann félagsmálaráðherra, Þórólf Halldórsson, formann Félags fasteignasala, Gunnar Helga Hálfdanarson, forstjóra Landsbréfa, Vigdísi Hreinsdóttur, forstöðumann ráðgjafarþjónustu Húsnæðisstofnunar, og Yngva Örn Kristinsson, formann stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkisins. Þá barst nefndinni umsögn um frumvarpið frá stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingar þær sem um er að ræða eru eftirfarandi:
1. Við 2. gr. Lagt er til að heimilað verði að skipta á fasteignaveðbréfum fyrir húsbréf fyrir fjárhæð er nemi allt að 75% af eðlilegu matsverði fasteignar. Ráðherra ákveður með reglugerð hvert hlutfall þetta skuli vera og getur hann ákveðið að hlutfallið vegna nýbygginga eða kaupa á íbúð í fyrsta sinn sé hærra en lánshlutfall vegna annarra fasteignaviðskipta. Það er vilji nefndarinnar að sú breyting, sem felst í breytingartillögunni, leiði ekki til þess að lánshlutfallið hækki almennt úr 65% í 75%, heldur er skapaður möguleiki á því fyrir ráðherra að ákveða að lánshlutfallið verði allt að 75% vegna nýbygginga og kaupa á fyrstu íbúð.
Ástæða þess að nefndin breytir fyrri efnismálsgrein 2. gr. er sú að frumvarpsgreinin þykir óþarflega margbrotin og óljós og er talin geta aukið á viðleitni til að gefnar verði rangar upplýsingar um kaup- og söluverð eigna.
2. Við 3. gr. Lagt er til að húsbréfaviðskipti vegna viðgerða og endurbóta hefjist ekki fyrr en 1. september 1991 þar sem nauðsynlegt er að dreifa því aukna álagi sem gera má ráð fyrir að verði á verðbréfamarkaði með tilkomu þessara viðskipta og viðskipta vegna greiðsluerfiðleika. Rétt er að taka fram að nefndin telur að félagsmálaráðherra hafi heimild til að ákveða að þeir, sem hefja endurbætur eftir 1. janúar 1991, eigi rétt til húsbréfa vegna viðgerða og endurbóta þegar hlutaðeigandi ákvæði laganna tekur gildi.
3. Við ákvæði til bráðabirgða. Talið er nauðsynlegt að fram séu tekin þau hlutfallslegu mörk um greiðslubyrði sem miða skal við þegar umsóknir eru metnar. Eðlilegt þykir að heimild til að geta fengið lánafyrirgreiðslu samkvæmt þessari grein sé bundin því að greiðslubyrði umsækjanda sé yfir 30% af áætluðum heildarlaunum hans á ári að jafnaði næstu fjögur árin og að eftir skuldabréfaskiptin fari greiðslubyrðin ekki upp fyrir þessi mörk né niður fyrir 20%, skilgreint á sama hátt.
Nefndin telur rétt að fram komi að það er skilningur hennar að ákvæði 1. gr. frumvarpsins um endurbætur á íbúðarhúsnæði nái einnig til lánaflokka er varða orkusparandi breytingar og einstaklinga með sérþarfir, sbr. 11. gr. laganna.
Alþingi, 10. des. 1990.
Margrét Frímannsdóttir,
form., frsm.
Guðmundur H. Garðarsson,
fundaskr.
Jóhann Einvarðsson.
Karl Steinar Guðnason.
Salome Þorkelsdóttir.
Danfríður Skarphéðinsdóttir.
Jón Helgason.