Ferill 185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 185 . mál.
Ed.
306. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt á l. nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu.
Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Finn Ingólfsson, aðstoðarmann heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóra Borgarspítalans, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúa, Davíð Á. Gunnarsson, forstjóra Ríkisspítala, Árna Björnsson yfirlækni og Loga Guðbrandsson, framkvæmdastjóra Landakotsspítala.
Nefndin telur rétt að leggja til eina breytingu á skipun samstarfsráðs sjúkrahúsanna í Reykjavík. Í stað þess að tveir fulltrúar séu skipaðir af ráðherra til eins árs í senn er lagt til að sá heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sem gegnir embætti hverju sinni, skipi tvo menn, en annar þeirra skal tilnefndur af sjórnarnefnd Ríkisspítala. Aðrar breytingar eru ekki efnislegar.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Stefán Guðmundsson og Guðmundur H. Garðarsson voru fjarverandi afgreiðslu málsins.
Alþingi, 12. des. 1990.
Valgerður Sverrisdóttir,
form., frsm.
Salome Þorkelsdóttir,
fundaskr., með fyrirvara.
Karl Steinar Guðnason.
Guðrún J. Halldórsdóttir.
Margrét Frímannsdóttir.