Ferill 109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 109 . mál.


Sþ.

309. Svar



fjármálaráðherra við fyrirspurn Þórhildar Þorleifsdóttur um ónýttan persónuafslátt.

     1. Hve margir gjaldendur notuðu sér ónýttan persónuafslátt maka á gjaldárunum 1988 og 1989, sbr. A - lið 68. gr. laga um tekjuskatt og eignarskatt?

    Samkvæmt upplýsingum úr skattframtölum nýttu 25.156 aðilar sér ónýttan persónuafslátt maka á árinu 1989, en samsvarandi tala fyrir árið 1988 er 25.816. Þessar tölur greinast þannig eftir kynjum:

    
1988
1989

Breyting


    

%



Heildarfjöldi
    
25.156
25.816 2,6

— ónýttur persónuafsláttur eiginkonu     
23.713
24.040 1,4
— ónýttur persónuafsláttur eiginmanns     
1.443
1.776 23,1

Kostnaður ríkissjóðs m.kr.:
Millifærsla persónuafsláttar samtals     
1.666
2.067 24,1

— millifærsla frá eiginkonu     
1.607
1.982 23,3
— millifærsla frá eiginmanni     
59
85 44,l


    2. Hvert var tekjutap ríkissjóðs vegna þessarar heimildar á árunum 1988 og 1989?

    Eins og fram kemur í töflunni hér að ofan kostaði millifærsla á ónýttum persónuafslætti ríkissjóð 1.666 millj. kr. á árinu 1988 og 2.067 millj. kr. árið 1989. Hækkunin nemur þannig 24%, en meðalhækkun persónuafsláttar var tæplega 20% milli þessara ára.