Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 55 . mál.
Ed.
310. Nefndarálit
um frv. til l. um opinbera réttaraðstoð.
Frá allsherjarnefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Umsagnir bárust frá Sýslumannafélagi Íslands, Dómarafélagi Íslands og Lögmannafélagi Íslands, auk þess sem gögn bárust frá dómsmálaráðuneytinu. Á fund nefndarinnar komu Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður, Sigurður Jónsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, og Skúli Guðmundsson, skrifstofustjóri Þjóðskrár.
Við athugun á frumvarpinu kom í ljós að nokkrum veigamiklum efnisþáttum átti að skipa með reglugerð, þar á meðal tekjumörkum þeirra sem rétt eiga á aðstoð í einstökum málum samkvæmt þriðja kafla frumvarpsins og þeirra sem eiga rétt á gjafsókn. Einnig var í frumvarpinu gert ráð fyrir því að þessar viðmiðunarfjárhæðir, sem ákveða skyldi með reglugerð, ættu að hækka árlega til samræmis við almennar verðhækkanir. Þykir nefndinni nauðsynlegt að skipa þessum málum með skýrum hætti og leggur því til að eftirtaldar breytingar verði gerðar.
Í fyrsta lagi að 8. gr. sé breytt þannig að kveðið sé á um það í lögunum hverjir eigi rétt til aðstoðar í einstökum málum. Miðað er við að tekjuskattsstofn einstaklings sé 850.000 kr. eða lægri samkvæmt skattframtali síðasta árs en tekjustofn hjóna eða sambúðarfólks sé samanlagt 1.275.000 kr. Í öðru lagi er lagt til að sama viðmiðun verði notuð í 15. gr. um gjafsóknarleyfi. Í þriðja lagi er lagt til að 19. gr. verði breytt þannig að með skýrum hætti sé kveðið á um hvernig viðmiðunarfjárhæðir skuli hækka. Er miðað við breytingar á lánskjaravísitölu á ársgrundvelli frá 1. október til sama tíma á næsta ári. Gert er ráð fyrir að viðmiðunarfjárhæðir hækki 1. desember á hverju ári. Í fjórða lagi er lagt til að lögin öðlist gildi 1. apríl 1991. Þriðji kaflinn öðlast þó ekki gildi fyrr en 1. júlí 1992 þegar lög um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds taka gildi. Í fimmta lagi eru lagðar til lagfæringar á 6., 7. og 9. gr. frumvarpsins en þær eru ekki efnislegar.
Lagt er til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 13. des. 1990.
Guðmundur Ágústsson,
form., frsm.
Jóhann Einvarðsson,
fundaskr.
Salome Þorkelsdóttir.
Danfríður Skarphéðinsdóttir.
Ey. Kon. Jónsson.
Skúli Alexandersson.
Valgerður Sverrisdóttir.