Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 227 . mál.
Ed.
315. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 82/1989.
(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990.)
1. gr.
12. gr. laganna orðast svo:
Hlutverk Framkvæmdasjóðs aldraðra er:
Heimilt er að veita allt að þriðjungi af árlegu ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóðs aldraðra til verkefna skv. 3. og 4. tölul.
2. gr.
Síðari málsliður 2. mgr. 19. gr. laganna orðast svo:
Mat á vistunarþörf skal að jafnaði vera í höndum þjónustuhóps aldraðra.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Talið er nauðsynlegt að gera breytingar á hlutverki Framkvæmdasjóðs aldraðra sem báðar eru þess eðlis að þær rýmka hlutverk hans.
Fyrri breytingin lýtur að því að sjóðnum sé heimild að styrkja viðhald á þeim stofnunum aldraðra sem þegar eru starfandi. Viðhald þessara stofnana getur verið geysilega fjárfrekt og þungur baggi á rekstraraðilum. Því er talið eðlilegt að opna hlutverk sjóðsins þannig að einnig megi styrkja viðhald til viðbótar við styrki til nauðsynlegra breytinga og endurbóta sem breyttir tímar valda.
Síðari breytingin er viðbrögð við þeim vanda sem iðulega verður þegar öldrunarstofnun fær starfsleyfi eða breytingu á starfsleyfi eftir að fjárlagaár hefst og ekki var gert ráð fyrir nýrri stofnun eða breytingu við fjárlagagerð. Með breytingu á starfsleyfi er fyrst og fremst átt við það þegar heilbrigðisráðherra heimilar það að þjónustuhúsnæðisrýmum verði breytt í hjúkrunarrými vegna þungrar hjúkrunar dvalargesta á viðkomandi stofnun. Þetta hefur gert það að verkum að öldrunarstofnanir hafa ekki getað tekið til starfa eða breytt starfsemi sinni fyrr en allt að ári síðar. Vart þarf að fara um það mörgum orðum hvaða erfiðleikum þetta veldur á þeim stöðum sem þetta á við um, húsnæði stendur tilbúið en fjármuni til reksturs skortir.
Hér er því gerð tillaga um það annars vegar að 2. tölul. 12. gr. verði rýmkaður þannig að viðhald bætist við sem verkefni sem Framkvæmdasjóður getur styrkt. Hins vegar er bætt inn nýjum tölulið sem verður 4. tölul. og 4. tölul. í gildandi lögum verður þannig 5. tölul. Í þessum nýja tölulið er heimilað að verja fjármunum Framkvæmdasjóðsins um stuttan tíma til reksturs stofnana fyrir aldraða. Þetta yrði að sjálfsögðu eingöngu tímabundið því að við næstu fjárlagagerð yrði við ákvörðun útgjalda sjúkratrygginga tekið tillit til breytinga á rekstri viðkomandi stofnunar eða hinnar nýju stofnunar.
Eðlilegt þykir að setja þak á það hversu miklu af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins megi verja til verkefna skv. 3. og 4. tölul. Því er bætt nýrri málsgrein við 12. gr. um að ekki megi verja nema þriðjungi af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins til verkefna af þessu tagi.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að árlegt ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóðs aldraðra verði jafnhátt heildarálagningu sérstaka gjaldsins þannig að ríkissjóður beri hallann ef innheimtan verður lægri.
Þá er hér í þessu frumvarpi gerð leiðrétting á gildandi lögum. Við meðferð málsins á Alþingi vorið 1989 láðist að leiðrétta 19. gr. til samræmis við breytingar sem gerðar voru á frumvarpinu í meðförum Alþingis. Þetta er leiðrétt hér með.