Ferill 80. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 80 . mál.


Ed.

317. Nefndarálit



um frv. til l. um endurgreiðslu á gjaldi af erlendum lánum vegna skipasmíða hér á landi.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Á síðasta þingi bárust umsagnir um frumvarpið frá Landssambandi iðnaðarmanna, Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja og Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri, auk þess sem upplýsingar um málið bárust frá Sambandi málm- og skipasmiðja.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Guðrún J. Halldórsdóttir var fjarverandi afgreiðslu málsins.

Alþingi, 14. des. 1990.



Guðmundur Ágústsson,


form., frsm.

Jóhann Einvarðsson,


fundaskr.

Skúli Alexandersson.


Eiður Guðnason.