Ferill 55. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 55 . mál.


Ed.

323. Frumvarp til laga



um opinbera réttaraðstoð.

(Eftir 2. umr. í Ed., 14. des.)



I. KAFLI


Almenn ákvæði.


1. gr.


     Markmið opinberrar réttaraðstoðar er að veita almenningi ráðgjöf á sviði lögfræði og jafnframt leitast við að tryggja að réttindi einstaklinga glatist ekki sökum lítilla efna.
     Dómsmálaráðherra hefur umsjón með opinberri réttaraðstoð sem skiptist í:
     almenna ráðgjöf,
     aðstoð í einstökum málum,
     réttargæslu fyrir brotaþola í opinberum málum,
     gjafsókn og gjafvörn fyrir dómstólum.

2. gr.


     Menn, sem hafa fasta búsetu hér á landi, eiga rétt til opinberrar réttaraðstoðar.

II. KAFLI


Almenn ráðgjöf.


3. gr.


     Almenn ráðgjöf er fólgin í munnlegum leiðbeiningum um réttarreglur og lagaúrræði varðandi tiltekið lögfræðilegt álitaefni hvort sem réttarágreiningur er orðinn eða ekki. Í ráðgjöfinni felst hvorki aðstoð við bréfaskriftir né gerð skjala eða skriflegra álitsgerða.

4. gr.


    Einstakir lögmenn eða samtök lögmanna, sem ráðherra gerir samning við, láta almenna ráðgjöf í té gegn fastri þóknun sem greiðist úr ríkissjóði. Þar sem ekki er kostur á þjónustu starfandi lögmanna eða fulltrúa þeirra getur ráðherra samið við aðra lögfræðinga um að veita ráðgjöfina.

III. KAFLI


Aðstoð í einstökum málum.


5. gr.


     Aðstoð í einstökum málum felst í venjubundinni lögfræðiráðgjöf, einfaldri skjalagerð, bréfaskiptum, umsóknum, kærum og mótum hjá opinberum stofnunum eða sýslunarmönnum vegna:
     sifja - , erfða - og persónuréttarmálefna,
     skaðabóta utan samninga,
     vátryggingasamninga,
     vinnusamninga,
     kaup - eða leigusamninga um íbúðarhúsnæði,
     lausafjárkaupa,
     stjórnsýslukæru,
     kvörtunar til umboðsmanns Alþingis,
     umsóknar um gjafsókn eða gjafvörn.

6. gr.


     Sýslumaður getur í einstökum tilviku m heimilað að aðstoð skv. 5. gr. skuli veitt umfram það sem þar segir, enda sé líklegt að hún leiði til lausnar ágreiningsefna án málshöfðunar eða sérstakar ástæður mæla með því.
     Á sama hátt getur sýslumaður einnig í sérstökum tilvikum heimilað aðstoð samkvæmt þessari grein til manns sem á í verulegum fjárhagsörðugleikum, en vill freista þess að koma nýrri skipan á fjármál sín, sbr. 7. gr. gjaldþrotalaga, nr. 6 5. maí 1978.

7. gr.


     Ráðherra ákveður árlega í samráði við Lögmannafélag Íslands hvaða starfandi héraðsdóms - og hæstaréttarlögmenn láti í té aðstoð í einstökum málum sem lög þessi ná til. Skal birta opinberlega lista með nöfnum lögmannanna og er þeim skylt að veita aðstoðina. Þeir geta þó synjað um aðstoð í einstökum tilvikum ef þeir telja málefni þess eðlis að aðstoðin sé bersýnilega þarflaus eða hún brjóti í bága við siðareglur lögmanna.

8. gr.


     Rétt til aðstoðar í einstökum málum eiga einstaklingar með 850.000 kr. tekjuskattsstofn eða lægri samkvæmt skattframtali ársins áður en aðstoðin er veitt. Aðstoðin skal ekki vera tengd atvinnurekstri viðkomandi. Tekjuskattsstofn í lögum þessum er sá sami og skilgreindur er í lögum um tekjuskatt og eignarskatt. Mæðra- og feðralaun teljast þó ekki til tekjuskattsstofnsins.
    Sé umsækjandi í hjúskap eða óvígðri sambúð á hann rétt á aðstoð ef samanlagður tekjuskattsstofn hjónanna eða sambúðaraðilanna er 1.275.000 kr. eða lægri.
     Aðstoð verður ekki veitt oftar en einu sinni á hverju almanaksári. Sýslumaður getur þó heimilað undantekningu þar frá ef sérstaklega stendur á.

9. gr.


     Fyrir veitta aðstoð skv. 5. gr. greiðist föst þóknun og skal upphæð hennar ákveðin í reglugerð. Ríkissjóður greiðir þrjá fjórðu hluta þóknunar en skjólstæðingur einn fjórða hluta.
     Fyrir veitta aðstoð skv. 6. gr. greiðist þóknun og má hún nema allt að þrefaldri þóknun skv. 1 mgr. Greiðsla þóknunar skiptist að jöfnu milli ríkissjóðs og skjólstæðings. Sýslumaður í því umdæmi, sem aðstoð er veitt í, úrskurðar um fjárhæð þóknunar samkvæmt þessari málsgrein eftir málsatvikum hverju sinni. Kæra má slíkan úrskurð til ráðuneytisins.

10. gr.


     Lögmaður, sem veitir aðstoð skv. 5. gr., skal fá greiddan kostnaðarhluta ríkissjóðs hjá embætti sýslumanns í því umdæmi sem aðstoð er veitt, sbr. 9. gr., enda leggi hann fram umsókn um að ríkissjóður taki þátt í kostnaði við lögfræðiaðstoð ásamt reikningi sínum. Umsókn skal undirrituð af þeim sem aðstoðar beiðist og þeim sem hana veitir.
     Í reglugerð skal nánar ákveða hvaða upplýsingar og yfirlýsingar skuli fylgja umsókn skv. 1. mgr., þar á meðal upplýsingar um tekjur og eignir þess sem aðstoðar beiðist og yfirlýsing um að sýslumanni sé heimilt að afla staðfestingar skattyfirvalda um að rétt sé frá skýrt.
     Nú synjar sýslumaður um kostnaðarþátttöku fyrir aðstoð og má þá skjóta synjuninni til úrskurðar ráðuneytisins.

IV. KAFLI


Réttargæsla fyrir brotaþola.


11. gr.


     Í málum, sem varða brot á 190. og 194. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19 12. febrúar 1940, skal þegar við upphaf lögreglurannsóknar kveðja til réttargæslumann fyrir þann sem ætla má að fyrir broti hafi orðið.
     Í málum sem varða brot á 195. – 203. gr. og 206. gr. almennra hegningarlaga er rannsóknaraðila eða dómara heimilt að kveðja til réttargæslumann fyrir þann sem ætla má að fyrir broti hafi orðið ef sá ber fram ósk um það. Skal brotaþoli inntur eftir því hvort hann óski eftir réttargæslumanni.
     Einnig er heimilt, ef nauðsynlegt þykir að mati rannsóknaraðila eða dómara, að kveðja réttargæslumann til á sama hátt fyrir þann sem ætla má að fyrir broti hafi orðið er varðað getur við 218. eða 226. gr. almennra hegningarlaga.

12. gr.


    Kostnað við réttargæslu brotaþola skv. 11. gr. skal greiða úr ríkissjóði, en endurkrefja skal kostnaðinn fyrir dómi ef til saksóknar kemur.

V. KAFLI


Um gjafsókn og gjafvörn.


13. gr.


     Orðið gjafsókn nær bæði til gjafsóknar og gjafvarnar vegna reksturs einkamála fyrir dómi.

14. gr.


     Ráðherra skal skipa nefnd þriggja löglærðra manna, gjafsóknarnefnd, til fjögurra ára í senn. Skal einn nefndarmanna skipaður samkvæmt tilnefningu Lögmannafélags Íslands. Nefndin skal veita umsögn um gjafsóknarbeiðnir og móta starfsreglur um veitingu gjafsóknarleyfa.

15. gr.


     Ráðherra veitir gjafsóknarleyfi samkvæmt umsókn þar að lútandi og að fenginni umsögn gjafsóknarnefndar. Skilyrði gjafsóknarleyfis er að málstaður umsækjanda gefi nægilegt tilefni til málsóknar og að efnahag hans sé svo háttað að kostnaður málsins verði honum fyrirsjáanlega ofviða, hvort tveggja að mati gjafsóknarnefndar.
     Viðmiðunarfjárhæðir vegna gjafsóknarleyfa skulu vera þær sömu og í 8. gr.

16. gr.


     Ráðherra getur, ef sérstaklega stendur á, veitt gjafsókn, enda þótt skilyrðum 15. gr. sé ekki fullnægt. Til álita koma einkum mál, þar sem tekist er á um grundvallaratriði við lagatúlkun, fjallað er um mikilvæga hagsmuni almennings eða málið hefur verulega þýðingu fyrir atvinnu - og félagslega stöðu umsækjanda. Gjafsóknarleyfi verður ekki veitt á grundvelli þessarar greinar nema gjafsóknarnefnd hafi fjallað um umsókn og mælt með því að gjafsókn verði veitt.

17. gr.


     Gjafsóknarleyfi skuldbindur ríkissjóð til greiðslu málskostnaðar skv. 18. gr. eftir því sem kveðið er á í dómi að svo miklu leyti sem fjárskuldbinding ríkissjóðs er ekki takmörkuð í leyfinu.
     Nú vinnur gjafsóknarhafi mál sitt fyrir héraðsdómi að hluta eða að öllu leyti, en gagnaðili skýtur málinu til Hæstaréttar og nær leyfið þá einnig til málskostnaðar sem þar er dæmdur, þar á meðal í gagnsök fyrir Hæstarétti.
     Í gjafsóknarleyfi skal skýrt koma fram til hvaða máls leyfi taki, hver sé lögmaður leyfishafa og fyrir hvaða dómstigi málið sé rekið.

18. gr.


     Málskostnaður samkvæmt lögum þessum telst:
     Réttargjöld við þær dómsathafnir sem leyfi nær til og kostnaður við afrit þeirra skjala er embættis - eða sýslunarmenn afgreiða til afnota við dómsathafnirnar.
     Ferðakostnaður og annar útlagður kostnaður.
     Kostnaður við birtingar og tilkynningar er málið útheimtir og dómsathafnir í sambandi við það, þóknun til þingvotta, vitna, mats - og skoðunarmanna og önnur slík gjöld.
     Þóknun lögmanns fyrir málflutning samkvæmt dómi.
                   Takist dómsátt um málið skal dómari engu að síður ákveða málskostnað.
    Gjafsóknarleyfi nær bæði til aðalmáls og aukamála í sambandi við það, svo sem vitnamála og matsmála auk lögbanns - og kyrrsetningargerða og fullnustugerða, nema takmarkanir séu gerðar í leyfisbréfi.
     Gjafsóknarleyfi fellur ekki niður við andlát leyfishafa.
     Afturkalla má gjafsóknarleyfi ef í ljós kemur að það hefur verið veitt að ófyrirsynju eða hagur leyfishafa breytist svo að þess er ekki lengur þörf. Við afturköllun fellur greiðsluskylda ríkissjóðs niður.
     Gjafsóknarleyfi nær einungis til þess kostnaðar sem gjafsóknarhafi hefur af málarekstri sínum, en haggar í engu skyldu hans til greiðslu málskostnaðar til gagnaðila síns samkvæmt dómi eða dómsátt.
     Sé gagnaðili dæmdur til greiðslu málskostnaðar skal ekki taka mið af því að gjafsóknarleyfi hefur verið veitt. Skal málskostnaður renna í ríkissjóð. Hafi gjafsóknarhafi sjálfur haft kostnað af málinu skal ákveðið í dómi hver hluti dæmds málskostnaðar skuli renna til gjafsóknarhafa og hver hluti skuli renna í ríkissjóð.

VI. KAFLI


Ýmis ákvæði.


19. gr.


     Ráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd laganna. Fjárhæðir þær, sem um er getið í 8. og 15. gr. og í reglugerð skv. 9. gr., eru grunnfjárhæðir sem breytast skulu 1. desember ár hvert í samræmi við breytingar á lánskjaravísitölu frá 1. október á næstliðnu ári til jafnlengdar á næsta ári, í fyrsta sinn 1. desember 1991.
     Dómsmálaráðherra skal með hæfilegum fyrirvara fyrir 1. desember ár hvert auglýsa opinberlega þær breytingar sem verða á viðmiðunarfjárhæðum skv. 1. mgr.

20. gr.


     Lög þessi taka gildi 1. apríl 1991 og fellur þá jafnframt úr gildi XI. kafli laga nr. 85 23. júní 1936, um meðferð einkamála í héraði. III. kafli tekur þó ekki gildi fyrr en 1. júlí 1992.

Ákvæði til bráðabirgða.


    
Fram til gildistöku laga nr. 92 1. júní 1989, um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, fara sýslumenn, bæjarfógetar og borgarfógetaembættið í Reykjavík með þau verkefni sem falin eru sýslumönnum skv. 5., 6., 9. og 10. gr. laganna.