Ferill 9. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 9 . mál.
Sþ.
325. Nefndarálit
um till. til þál. um átak gegn einelti.
Frá félagsmálanefnd.
Nefndin hefur fjallað um tillöguna og mælir með samþykkt hennar með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Tillagan var upphaflega flutt á síðasta þingi. Þá var hún send til umsagnar fjölmargra aðila. Tillagan hlaut víðtækan stuðning og lýstu allir þeir sem tjáðu sig í umsögnum til nefndarinnar um efni tillögunnar yfir stuðningi við hana. Þar var um að ræða Kennarasamband Íslands, skólamálanefnd Hins íslenska kennarafélags, Samtök foreldra og kennara í Reykjavík (SAMFOK), fræðslustjóra Vesturlandsumdæmis, fræðslustjóra Suðurlandsumdæmis, fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra, fræðslustjóra Austurlandsumdæmis, sálfræðideild skóla í Reykjavík, Unglingaheimili ríkisins, Sálfræðingafélag Íslands, Ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu Reykjanesumdæmis, kennsluráðgjafa Fræðsluskrifstofu Austurlandsumdæmis og umhverfis- og friðarnefnd Fóstrufélags Íslands.
Nefndin telur brýnt að sem fyrst verði skipaður sá samstarfshópur sem tillagan gerir ráð fyrir þannig að fljótlega liggi fyrir fyrstu tillögur um aðgerðir gegn einelti.
Alþingi, 14. des. 1990.
Hjörleifur Guttormsson,
form., frsm.
Rannveig Guðmundsdóttir,
fundaskr.
Birgir Ísl. Gunnarsson.
Kristinn Pétursson.
Alexander Stefánsson.
Ásgeir Hannes Eiríksson.
Anna Ólafsdóttir Björnsson.