Ferill 38. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 38 . mál.


Sþ.

328. Breytingartillögur



við till. til þál. um athugun á lágmarksframfærslukostnaði í landinu.

Frá félagsmálanefnd.



     Tillgr. orðist svo:
                   Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til að vinna að athugun á lágmarksframfærslukostnaði hér á landi. Nefndin kanni m.a. hvaða not megi hafa af framfærslu- og neyslukönnunum sem þegar hafa verið gerðar og leiti aðstoðar Hagstofu Íslands og annarra sérfróðra aðila.
                   Nefndin skili greinargerð um störf sín fyrir árslok 1991.
     Fyrirsögn till. orðist svo: Till. til þál. um athugun á lágmarksframfærslukostnaði.