Ferill 237. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 237 . mál.
Ed.
344. Frumvarp til laga
um sjóðshappdrætti til stuðnings flugbjörgunarmálum og skák.
(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990.)
1. gr.
Dómsmálaráðherra er heimilt að veita Landssambandi flugbjörgunarsveita og Skáksambandi Íslands leyfi til að starfrækja svonefnt sjóðshappdrætti í nafni félags sem þessi samtök stofna.
Heimild þessi gildir til ársloka 2005.
2. gr.
Happdrættið byggist á því að þátttakendur greiða tiltekna fjárhæð eða margfeldi hennar í sérstakan sjóð sem safnað er upp um tiltekinn tíma, en um vinninga skal síðan dregið með tilviljunarkenndum hætti undir eftirliti borgarfógetaembættisins í Reykjavík.
3. gr.
Stjórn félags þess, sem starfrækir happdrættið, skal skipuð fimm mönnum til eins árs í senn. Skipa Landssamband flugbjörgunarsveita og Skáksamband Íslands tvo stjórnarmenn hvort, en dómsmálaráðherra skipar formann. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Aðilar gera með sér samkomulag, sem dómsmálaráðherra staðfestir, um rekstur félagsins, þar á meðal um ábyrgð á rekstri þess.
4. gr.
Gjald fyrir þátttöku í happdrættinu (miðaverð) ákveður dómsmálaráðherra að fengnum tillögum frá stjórn félagsins.
5. gr.
Dómsmálaráðherra ákveður, að fengnum tillögum frá stjórn félagsins, vinningshlutfall af heildarfjárhæð sjóðsins hverju sinni. Vinningar mega vera í formi ríkisskuldabréfa.
Vinningar eru undanþegnir hvers konar opinberum gjöldum, öðrum en eignarskatti, á því ári sem þeir falla.
6. gr.
Ágóða af happdrættinu skal skipta í tvo hluta. Skulu 40% ágóðans renna til Landssambands flugbjörgunarsveita og Skáksambands Íslands að jöfnu til að efla starfsemi þeirra. Hinn hlutann, 60%, skal leggja í sérstakan þyrlu - og björgunarsjóð sem verja skal til kaupa á björgunarþyrlu og/eða öðrum björgunartækjum fyrir Landhelgisgæslu Íslands. Dómsmálaráðherra fer með stjórn og ráðstöfun sjóðsins og sér um ávöxtun hans.
7. gr.
Dómsmálaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um happdrættisstarfsemina, að fengnum tillögum stjórnar félagsins, og hefur að öðru leyti eftirlit með starfsemi þess.
8. gr.
Brot á lögum þessum varða sektum.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er byggt á samkomulagi Landssambands flugbjörgunarsveita og Skáksambands Íslands um rekstur happdrættis sem fyrirhugað er að fari fram með þeim hætti að þátttakendur greiði tiltekna fjárhæð eða margfeldi þeirrar fjárhæðar í sérstakan sjóð sem safnað er upp um tiltekinn tíma, en um vinninga verði síðan dregið með tilviljunarkenndum hætti. Hafa samtök flugbjörgunarsveita og Skáksambandið gert með sér drög að samkomulagi um stofnun félags um slíkan rekstur ef lagaheimild fæst.
Lagt er til að fólki verði gefinn kostur á að taka þátt í svokölluðu sjóðshappdrætti þar sem það styddi annars vegar gott málefni, en ætti hins vegar kost á að detta í lukkupottinn og hreppa stóran vinning í formi ríkisskuldabréfa. Framkvæmdin er hugsuð þannig að viðkomandi greiði ákveðna fjárhæð, t.d. 500 kr., eða margfeldi þeirrar fjárhæðar, inn í sérstakan sjóð, sem verði safnað upp um tiltekinn tíma, t.d. í einn mánuð, og þá dregin út vinningsnúmer. Gert er ráð fyrir samstarfi við greiðslukortafyrirtæki í þessu sambandi. Fólki verði gefinn kostur á að gerast áskrifendur að happdrættinu og að láta draga ákveðna upphæð á mánuði út af greiðslukortareikningi sínum til greiðslu áskriftargjalds. Öðrum yrði enn fremur gefinn kostur á því að taka þátt með því að greiða þátttökugjald (miðaverð) inn á sérstakan reikning í bönkum og sparisjóðum.
Gert er ráð fyrir að ákveðið hlutfall, t.d. helmingur þess fjár, sem inn kæmi, færi í greiðslu vinninga. Vinningar yrðu í formi ríkisskuldabréfa og mundu stuðla að innlendum sparnaði á sama tíma. Rekstraraðilarnir mundu hljóta 40% af ágóðanum, en 60% hans mundu renna í sjóð sem yrði þáttakandi í fjármögnun nýrrar björgunarþyrlu.
Þátttakendur slá margar flugur í einu höggi. Þeir styðja við bakið á samböndunum tveimur, styðja og flýta fyrir kaupum á björgunarþyrlu og eiga möguleika á að fá góðan vinning í formi ríkisskuldabréfa.
Eins og rakið er hér að framan er gert ráð fyrir að vinningar í happdrætti þessu verði greiddir út í ríkisskuldabréfum. Samkvæmt lögum um happdrætti (lotterí) og hlutaveltur (tombólur), nr. 6/1926, er óheimilt án lagaheimildar að setja á stofn „peningahappdrætti eða önnur því lík happspil“. Lagasetning í ofangreindu skyni er því nauðsynleg.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Grein þessi felur í sér heimild til að veita Landssambandi flugbjörgunarsveita og Skáksambandi Íslands leyfi til að starfrækja sjóðshappdrætti. Með orðinu sjóðshappdrætti er átt við happdrætti þar sem vinningsfjárhæð er ekki ákveðin fyrir fram heldur ræðst hún af þeirri fjárhæð sem safnast hefur í sjóð fram að einhverju ákveðnu tímamarki þegar sölu er hætt. Leyfi til starfrækslu happdrættis af þessu tagi verður ekki veitt án lagaheimildar. Lagt er til að heimildin verði tímabundin.
Um 2. gr.
Happdrætti þetta er óvenjulegt að því leyti að fyrir fram er ekki vitað hversu háir vinningar verða heldur ræðst það af þátttöku í happdrættinu. Ekki er skilgreint nákvæmlega með hvaða hætti dráttur skuli fara fram, en gert er ráð fyrir að það verði með svipuðum hætti og tíðkast um happdrætti. Dráttur fari fram undir eftirliti borgarfógetaembættisins í Reykjavík en eftir 1. júlí 1992 sýslumannsins í Reykjavík. Kveða þarf á um fyrirkomulag þessa í reglugerð.
Um 3. gr.
Samkomulag er milli Landssambands flugbjörgunarsveita og Skáksambands Íslands um fyrirkomulag í stjórn þess félags sem ætlað er að starfrækja happdrættið. Hvort landssamband skipar tvo stjórnarmenn en dómsmálaráðherra skipar formann. Um rekstur happdrættisins er gert ráð fyrir að aðilar geri samkomulag sem dómsmálaráðherra staðfesti. Þar verði kveðið á um ábyrgð á rekstri félagsins.
Um 4. gr.
Greinin er í samræmi við það sem gildir um happdrætti almennt.
Um 5. gr.
Lagt er til að ráðherra kveði á um vinningshlutfall, en fjárhæð vinninga ræðst af þátttöku. Sem meginregla er í upphafi miðað við það að a.m.k. 50% af heildarsöluverði miða hverju sinni verði varið til vinninga. Ekki þykir rétt að lögfesta ákvæði um vinningshlutfall, enda geta ýmsir þættir, svo sem rekstrarkostnaður og markaðsaðstæður á hverjum tíma, leitt til þess að heppilegt geti verið að breyta vinningshlutfallinu. Einstakir vinningar verða ákveðnir sem tiltekinn hundraðshluti af þeirri fjárhæð sem fellur til greiðslu vinninga. Að vinningar megi vera í formi ríkisskuldabréfa veitir þessu happdrætti sérstöðu umfram önnur. Í þessu felst ekki bann við að vinningar verði aðrir en ríkisskuldabréf en beinir peningavinningar eru ekki heimilir.
Síðari málsgreinin þarfnast ekki skýringa.
Um 6. gr.
Greinin kveður á um það í hvaða skyni ágóða af rekstri happdrættisins skuli varið, þ.e. annars vegar til eflingar á starfsemi Landssambands flugbjörgunarsveita og Skáksambands Íslands og hins vegar til kaupa á björgunarþyrlu. Það er mjög brýnt fyrir Landhelgisgæslu Íslands að eins fljótt og hægt er verði keypt önnur stór þyrla til að sinna því björgunarstarfi sem Landhelgisgæslan hefur sinnt og til þess að efla það og styrkja. Happdrættið gæti, ef vel tekst til, aflað verulegra fjármuna til þessa auk þess sem það mundi auka möguleika á að aðrar fjármögnunarleiðir yrðu farnar jafnframt.
Um 7. gr.
Um starfsemi happdrættisins verði kveðið nánar í reglugerð.
Um 8. og 9. gr.
Greinarnar þarfnast ekki skýringa.