Ferill 235. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 235 . mál.
Nd.
351. Breytingartillögur
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
Frá Geir H. Haarde.
Ákvæði til bráðabirgða II með lögum nr. 79/1989 fellur niður.
Þeir sem fengu úrskurðaðar húsnæðisbætur á grundvelli umsóknar með skattframtali 1989 vegna tekjuársins 1988 skulu halda þeim rétti og fá greiddar húsnæðisbætur í samræmi við ákvörðun skattstjóra í allt að sex ár, þó aldrei lengur en til ársins 1994, enda séu uppfyllt önnur skilyrði um húsnæðisbætur.
Þeir sem hefðu átt rétt til húsnæðisbóta vegna húsnæðisöflunar á tímabilinu frá 1. janúar 1989 til 14. júní 1989 á grundvelli þágildandi laga geta sótt um slíkar bætur í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður eigi síðar en með skattframtali sínu á árinu 1991. Fái maður slíkar bætur úrskurðaðar vegna þessa tímabils skal hann halda þeim rétti og fá greiddar húsnæðisbætur í samræmi við ákvörðun skattstjóra til loka þess tímabils er ákvörðun skattstjóra tók til, þó aldrei lengur en til ársins 1995.
Skattstjóri skal gera rétthöfum samkvæmt ákvæði 1. mgr. viðvart um rétt þeirra til húsnæðisbóta og gefa þeim kost á að ákveða hvort þeir velja að fá slíkar bætur. Slík ósk skal hafa komið fram eigi síðar en við lok kærufrests skv. 99. gr. laga nr. 75/1981 vegna álagningar á árinu 1991. Rétthafi skal bundinn við val sitt þar til greiðslum húsnæðisbóta til hans lýkur.
Þeir sem fá úrskurðaðar húsnæðisbætur á grundvelli 1. og 2. mgr. geta aldrei notið vaxtabóta samtímis.