Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 161 . mál.
Ed.
355. Nefndarálit
um frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1991.
Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar um nokkurt skeið og fékk til fundar við sig Steingrím J. Sigfússon samgönguráðherra, Tómas Árnason, Eirík Guðnason og Ingimund Friðriksson frá Seðlabanka Íslands, Leif Kr. Jóhannesson frá Stofnlánadeild landbúnaðarins, Benedikt Jónsson frá Lífeyrissjóði bænda, Hermann Guðjónsson og Eyþór Elíasson frá Vita- og hafnamálastofnun, Harald Andrésson frá Hafnabótasjóði, Kristínu Halldórsdóttur og Magnús Oddsson frá Ferðamálaráði, Jóhönnu Leópoldsdóttur og Snorra Tómasson frá Ferðamálasjóði, Þorstein Jónsson frá Kvikmyndasjóði, Braga Hannesson frá Iðnlánasjóði, Þorvald Alfonsson frá Iðnþróunarsjóði, Guðmund Malmquist frá Byggðastofnun, Markús Örn Antonsson og Hörð Vilhjálmsson frá Ríkisútvarpinu, Pál Hersteinsson veiðistjóra, Jóhönnu Ottesen frá Útflutningslánasjóði, Hrafn Pálsson frá Framkvæmdasjóði aldraðra, Hauk Halldórsson frá Stéttarsambandi bænda, Gísla Karlsson frá Framleiðnisjóði, Þórð Skúlason og Birgi Blöndal frá Bjargráðasjóði, Sveinbjörn Óskarsson frá fjármálaráðuneytinu, Magnús Jónasson og Tryggva Jónasson frá Herjólfi hf., Þórð Friðjónsson frá Þjóðhagsstofnun, Hilmar Þórisson, Hauk Sigurðsson og Hönnu Bj. Ragnarsdóttur frá Húsnæðisstofnun ríkisins, Hauk Hafsteinsson frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna, Margréti Margeirsdóttur og Grétu Aðalsteinsdóttur frá Framkvæmdasjóði fatlaðra, Stefán Thors frá Skipulagi ríkisins, Helga Hallgrímsson og Hannes Sigurðsson frá Vegagerð ríkisins, Hauk Hauksson frá Flugmálastjórn, Árna Þór Sigurðsson og Þórð G. Valdimarsson frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, Þórleif Jónsson frá Landssambandi iðnaðarmanna, séra Guðmund Þorsteinsson dómprófast, Helga K. Hjálmsson frá leikmannaráði Þjóðkirkjunnar og biskup Íslands, herra Ólaf Skúlason.
Halldór Árnason, skrifstofustjóri Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, og Jón Ragnar Blöndal frá fjármálaráðuneytinu hafa verið nefndinni til ráðuneytis og aðstoðar við yfirferð málsins.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir þeim breytingartillögum sem meiri hl. nefndarinnar hefur orðið sammála um að flytja.
Samkvæmt tillögunum hækka lántökuheimildir frumvarpsins um 2.411 millj. kr. og eru meginástæður þess eftirtaldar:
Í fyrsta lagi er lagt til að lántökuheimild fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs hækki um 2.185 millj. kr. og verði 14.060 millj. kr. Aukin lánsfjárþörf stafar af eftirfarandi:
Millj. kr.
a. Aukinn rekstrarhalli A-hluta ríkissjóðs
1.000
b. Aukin lántökuheimild Alþjóðaflugþjónustunnar
385
c. Auknar afborganir af lánum ríkissjóðs
800
Miðað við núverandi stöðu frumvarps til fjárlaga fyrir árið 1991 má ætla að halli A-hluta ríkissjóðs aukist um allt að 1.000 millj. kr.
Lántökuheimild Alþjóðaflugþjónustunnar fyrir árið 1991 nemur samtals 500 millj. kr. Í athugasemdum við 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir heimild fyrir 115 millj. kr. lántöku, en hún hækkar um 385 millj. kr. Þetta fé fæst endurgreitt frá Alþjóðaflugmálastofnuninni á 10 ára tímabili með 10% ársvöxtum. Andvirði lánsins verður notað í áframhaldandi uppbyggingu flugstjórnarkerfisins fyrir norðanvert Atlantshaf ásamt byggingu nýrrar flugstjórnarmiðstöðvar í Reykjavík og til kaupa á nauðsynlegum tækjabúnaði í hana.
Ríkissjóður hefur yfirtekið skuldir Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, sbr. lög nr. 34/1990, og kemur fyrri hluti þeirra, 800 millj. kr., til greiðslu á árinu 1991.
Lagt er til að Flóabátnum Baldri hf. verði veitt 15 millj. kr. lántökuheimild á árinu til að ljúka frágangi skipsins til þess að það öðlist haffæriskírteini, en skipið hefur aðeins haffæriskírteini til bráðabirgða sem rennur út 28. febrúar 1991.
Einnig er lagt til að Skallagími hf., útgerðarfélagi Akraborgarinnar, verði veitt heimild til að taka 11 millj. kr. skuldbreytingalán sem notað verður til að greiða upp erlent lán sem félagið hefur hjá Landsbanka Íslands. Það lán er með lokagjalddaga á næsta ári, en fyrirsjáanlega mun Skallagrímur hf. ekki geta staðið undir þeirri greiðslu.
Að lokum er lagt til að Hitaveitu Suðurnesja verði veitt 200 millj. kr. lántökuheimild á næsta ári til að gera nýja 132 kV háspennilínu og tilheyrandi aðveitustöð auk ýmissa annarra framkvæmda.
Í frumvarpi til lánsfjárlaga fyrir árið 1990 var tekið fram að af 900 millj. kr. lántökuheimild Byggðastofnunar væru 150 millj. kr. ætlaðar til endurlána vegna viðgerða og endurbóta skipa innan lands. Í athugasemdum við 7. gr. frumvarpsins er ekkert tekið fram um þessi endurlán. Nefndinni barst bréf frá iðnaðarráðherra 17. des. sl. þar sem hann væntir þess að af 900 millj. kr. lántökuheimild Byggðastofnunar verði 150 millj. kr. ætlaðar til endurlána vegna viðgerða og endurbóta skipa innan lands eins og verið hefur. Meiri hl. nefndarinnar vill taka undir og ítreka þessa ósk iðnaðarráðherra.
Breytingar á II. kafla frumvarpsins eru í samræmi við fjárlagafrumvarp fyrir árið 1991 og breytingar á því í meðförum fjárveitinganefndar og Alþingis auk þess sem nokkrar lagfæringar eru gerðar á frumvarpinu. Lagt er til að tekjustofnar Menningarsjóðs verði óskertir. Einnig er gert ráð fyrir að engin skerðing verði á hlutdeild sókna, skráðra trúfélaga og Háskólasjóðs í óskiptum tekjuskatti (sóknargjöld). Í stað þess er lagt til að skerðing á hlutdeild kirkjugarða í óskiptum tekjuskatti (kirkjugarðsgjöld) hækki úr 15% í 20%.
Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 18. des. 1990.
Guðmundur Ágústsson,
form., frsm., með fyrirvara.
Jóhann Einvarðsson.
Skúli Alexandersson.
Eiður Guðnason.