Ferill 83. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 83 . mál.


Nd.

361. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um fangelsi og fangavist, nr. 48 19. maí 1988.

Frá meiri hl. allsherjarnefndar (JK, AðB, IBA, GuðnÁ, RG).



     Við 1. gr. bætast tveir nýir málsliðir svohljóðandi: Þegar ákvörðun er kærð skulu gögn málsins þegar send ráðuneytinu. Ráðuneytið skal taka ákvörðun innan tveggja sólarhringa frá því að kæra barst, ella fellur ákvörðun úr gildi.
     Við b-lið 2. gr. bætast tveir nýir málsliðir svohljóðandi: Þegar ákvörðun er kærð skulu gögn málsins þegar send ráðuneytinu. Ráðuneytið skal taka ákvörðun innan tveggja sólarhringa frá því að kæra barst, ella fellur ákvörðun úr gildi.