Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 227 . mál.


Ed.

381. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um málefni aldraðra, nr. 82/1989.

Frá meiri hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Hrafn Pálsson, deildarstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, og séra Sigurð H. Guðmundsson sem sæti á í samstarfsnefnd um málefni aldraðra, sem jafnframt er stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
    Nefndin er ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. hennar leggur til að gerð verði sú breyting á frumvarpinu að ráðstöfunarfé vegna annarra verkefna, sem sjóðstjórn ákveður og ráðherra samþykkir skv. 5. tölul. 1. efnismgr. 1. gr., komi einungis af þriðjungi árlegs ráðstöfunarfjár. Þannig er tryggt að tveir þriðju hlutar af árlegu ráðstöfunarfé fara til verkefna skv. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. frumvarpsins.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur áherslu á að í frumvarpinu er gert ráð fyrir að árlegt ráðstöfunarfé Framkvæmdasjóðs aldraðra verði jafnhátt heildarálagningu þess sérstaka gjalds sem lagt er á tekjuskattsskylda einstaklinga til sjóðsins, sbr. 10. gr. laga nr. 82/1989, um málefni aldraðra. Með þessu er tryggt að ríkissjóður ber hallann ef innheimta verður lægri.
    Auk þess leggur meiri hl. nefndarinnar til að lög þessi öðlist þegar gildi eftir samþykkt frumvarpsins en ekkert gildistökuákvæði er í frumvarpinu.
    Meiri hl. nefndarinnar mælir með samþykkt frumvarpsins með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 19. des. 1990.



Valgerður Sverrisdóttir,


form., frsm.

Karl Steinar Guðnason.

Margrét Frímannsdóttir.


Stefán Guðmundsson.