Ferill 249. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 249 . mál.


Nd.

385. Frumvarp til laga



um sölu hlutabréfa í Þormóði ramma hf. í Siglufirði.

Flm.: Páll Pétursson, Pálmi Jónsson.



1. gr.


     Fjármálaráðherra er óheimilt að selja hlutabréf ríkisins í Þormóði ramma hf. í Siglufirði nema að fengnu samþykki Alþingis.

2. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


     Uppi hafa verið hugmyndir í fjármálaráðuneyti um að selja einkaaðilum meiri hluta hlutabréfa í Þormóði ramma hf.
     Hér er um miklar eignir að ræða og fyrirtæki sem er burðarás í atvinnulífi Siglufjarðar. Því er sjálfsagt að Alþingi gefist kostur á að fjalla um málið.