Ferill 83. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 83 . mál.


Nd.

386. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um fangelsi og fangavist, nr. 48 19. maí 1988.

Frá minni hl. allsherjarnefndar.



    Nefndin varð ekki sammála um afgreiðslu málsins. Meiri hl. leggur til að frumvarpið verði samþykkt að efni til eins og það var lagt fram, en flytur einnig tillögu um að úrskurða skuli í kærumáli innan tveggja sólarhringa. Minni hl., undirritaður nefndarmaður, getur fallist á þá tillögu. Hann telur hins vegar ekki rétt að ákvörðun um einangrun fanga eða agaviðurlög sæti kæru beint til dómsmálaráðuneytis, heldur verði að kæra fyrst til Fangelsismálastofnunar.
    Í samræmi við ofanritað eru breytingartillögur fluttar á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 19. des. 1990.



Ólafur G. Einarsson.