Ferill 185. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 185 . mál.
Nd.
390. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt á l. nr. 97/1990, um heilbrigðisþjónustu.
Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.
Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Finn Ingólfsson, aðstoðarmann heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúa, Davíð Á. Gunnarsson, forstjóra Ríkisspítala, og Árna Björnsson yfirlækni.
Í meðförum efri deildar var gerð breyting á skipan samstarfsráðs sjúkrahúsanna, sbr. nefndarálit á þskj. 306. Nefndin telur nauðsynlegt að breyta enn frekar skipan ráðsins til þess að tryggt sé að þetta frumvarp nái markmiði sínu verði það að lögum. Nefndin leggur til að fjölgað verði um tvo fulltrúa í ráðinu þannig að þeir verði sjö. Fjölgunin felst í því að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skipi fjóra menn í ráðið í stað tveggja. Lagt er til að tveir fulltrúar verði skipaðir án tilnefningar, einn tilnefndur af stjórnarnefnd Ríkisspítala og einn fulltrúi verði tilnefndur af borgarstjórn Reykjavíkur. Einnig er lagt til að allur vafi verði tekin af um skipunartíma fulltrúa ráðherra í samráðsnefndinni. Aðrar breytingar eru ekki efnislegar.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Ragnhildur Helgadóttir voru fjarverandi afgreiðslu málsins.
Alþingi, 19. des. 1990.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
form., frsm.
Anna Ólafsdóttir Björnsson,
fundaskr.
Geir H. Haarde.
Geir Gunnarsson.
Guðmundur G. Þórarinsson.