Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 227 . mál.


Ed.

403. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um málefni aldraðra, nr. 82/1989.

Frá 1. minni hl. heilbrigðis - og trygginganefndar.



    Nefndinni barst þetta frumvarp með mjög óvæntum hætti rétt fyrir jólahlé. Lítið svigrúm var gefið af hálfu meiri hl. nefndarinnar til að leita eðlilegra umsagna um málið eða afla nauðsynlegra gagna. Að vísu voru kvaddir á einn fund með nefndinni tveir kunnáttumenn um málefni aldraðra, þeir Hrafn Pálsson deildarstjóri og séra Sigurður H. Guðmundsson, sem gáfu glöggar og góðar upplýsingar. Þrátt fyrir það hefðu verið eðlilegri vinnubrögð að frumvarpið væri sent til aðila er fjalla um málefni aldraðra og leitað skriflegra umsagna.
    Fyrsti minni hl. nefndarinnar mótmælir þessum vinnubrögðum og telur þau óþingleg. En þrátt fyrir það telur hann sig knúinn til að reyna til hins ýtrasta að forða Framkvæmdasjóði aldraðra frá stóráföllum með því að leggja fram breytingartillögur við frumvarpið á sérstöku þingskjali.
    Eins og fram kemur í breytingartillögunum er lögð áhersla á að Framkvæmdasjóður aldraðra fái að fullu þær tekjur sem sjóðnum ber samkvæmt lögum með því að skerðingarákvæði frumvarps til laga um lánsfjárlög verði niður felld.
    Enn fremur er lagt til að sjóðurinn verði ekki samhliða framkvæmda - og rekstrarsjóður. Er sérstaklega varað við þeirri stefnu þar sem hún getur eyðilagt megintilgang Framkvæmdasjóðs aldraðra. Rekstrarfjárþörf stofnana aldraðra verður að mæta með öðrum hætti.
    Sú leið, sem felst í frumvarpi því til laga um Framkvæmdasjóð aldraðra sem meiri hl. nefndarinnar stendur hér að, skerðir enn frekar fjárhagsstöðu stofnana aldraðra og mun auka vanda þeirra. Breytingartillaga 1. minni hl. miðar hins vegar að því að styrkja stöðu Framkvæmdasjóðs aldraðra.

Alþingi, 19. des. 1990.



Salome Þorkelsdóttir,


fundaskr., frsm.

Guðmundur H. Garðarsson.