Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 227 . mál.


Ed.

415. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um málefni aldraðra, nr. 82/1989.

Frá 2. minni hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.



    Nefndin var tekin að ræða frumvarpið jafnvel áður en fjallað var um það við 1. umr. í Ed. og verður að segjast að miklum þrýstingi var beitt við nefndarmenn til að koma því í höfn fyrir jólaleyfi. Því hefur gefist heldur naumur tími til að fjalla um málið. Telja verður varhugavert að veita fleiri verkefnum inn í sjóð sem aldrei hefur getað sinnt hlutverki sínu til fullnustu því að árum saman hefur hann verið skertur við afgreiðslu lánsfjárlaga. Óafgreidd mál munu hafa hlaðist upp hjá sjóðnum og er vandséð hvernig hann á að geta staðið undir víkkuðu starfssviði þó að skerðingunni verði af honum létt og nokkurt fé bætist í sjóðinn að auki, svo mikið mun ásókn í úthlutunarfé sjóðsins aukast. Eigi að síður eru þeir þættir frumvarpsins, sem varða víkkað verksvið sjóðsins, nauðsynlegir og óhjákvæmilegir en 2. minni hl. treystir sér ekki til að styðja þá nema sjóðnum sé séð fyrir miklu meira fjármagni en nú mun ætlað í hann og mun því sitja hjá við afgreiðslu frumvarpsins.

Alþingi, 20. des. 1990.



Guðrún J. Halldórsdóttir.