Ferill 254. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 254 . mál.


Nd.

426. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um eftirlit með matvælum og öðrum neyslu- og nauðsynjavörum, nr. 24 frá 1. febrúar 1936.

Flm.: Ásgeir Hannes Eiríksson.



1. gr.


     Við 2. gr. laganna bætist svohljóðandi málsgrein:
     Náttúruleg vítamín og önnur fæðubótaefni, sem fyrst og fremst eru ætluð sem uppbót á daglegt fæði, teljast ekki lyf og falla undir ákvæði þessara laga.

2. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


     Frumvarp þetta til laga er flutt í samfloti með lagafrumvarpi um breytingar á lyfjalögum, nr. 49/1978. Um nánari rökstuðning er vísað í greinargerð með því frumvarpi.