Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 280 . mál.


Sþ.

513. Tillaga til þingsályktunar



um að setja upp lýsingu á Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur.

Flm.: Jóhann Einvarðsson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera kostnaðar- og framkvæmdaáætlun við að setja upp lýsingu við Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur og leggja hana fyrir Alþingi eigi síðar en við næstu endurskoðun vegáætlunar.

Greinargerð.


    Tillaga þessi var áður lögð fram á 111. löggjafarþingi. Þá hafði verið lögð fram tillaga til þingsályktunar um tvöföldun Reykjanesbrautar, tillaga sem er alls góðs makleg og flutningsmaður er hlynntur sem lokatakmarki.
    Fyrir nokkrum árum stóð flutningsmaður að tillögu um að kanna hagnýtt gildi þeirra hugmynda sem uppi hafa verið um rafknúna járnbraut frá Reykjavík til Suðurnesja og austur fyrir fjall. Sú tillaga hlaut ekki afgreiðslu, en slík könnun þyrfti að fara fram.
    Báðar þessar tillögur, þ.e. tvöföldun Reykjanesbrautar og rafknúin járnbraut frá Reykjavík, t.d. að Flugstöð Leifs Eiríkssonar, eiga því miður allt of langt í land, m.a. vegna mikils kostnaðar.
    Talið er að umferð um Reykjanesbraut sé farin að nálgast 10.000 bifreiðar á sólarhring sem segir ekki alla söguna því að í raun eru aðeins tveir „toppar“, þ.e. umferðin er langmest árla morguns og síðan síðdegis á brottfarar- og komutímum flugvéla á Keflavíkurflugvelli, svo og við upphaf og lok vinnutíma á Keflavíkurflugvelli, en þar starfar mikill fjöldi Íslendinga hjá innlendum og erlendum aðilum.
    Slysatíðni á Reykjanesbraut er mikil og flest slys mjög alvarleg, enda hraði mikill og aðstæður ekki alltaf eins og best verður á kosið.
    Það er skoðun flutningsmanns að fullkomin lýsing við veginn sé fjótvirkasta og ódýrasta lausnin í sjónmáli til þess að draga úr slysatíðninni. Það hefur sýnt sig að þar sem lýsing hefur verið bætt á hættulegum umferðarslóðum hefur slysum fækkað.
    Unnt er að vinna þetta verk í áföngum. Samkvæmt upplýsingum, sem flutningsmaður hefur aflað sér, má áætla að kostnaðurinn við þetta verk, þ.e. frá Hafnarfirði að Innri-Njarðvík, sé 80 – 90 millj. kr. Þegar hafa gatnamótin við Grindavíkurveg og Voga verið lýst og er það til mikilla bóta.