Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 161 . mál.


Nd.

525. Breytingartillaga



við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1991.

Frá Stefáni Valgeirssyni.



    Við frumvarpið bætist ný grein er verði 35. gr., svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði í 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er fjármálaráðherra heimilt að fella niður eða endurgreiða virðisaukaskatt af gjöfum til björgunarsveita, svo og til mannúðar- og líknarstarfsemi.