Ferill 291. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 291 . mál.
Sþ.
526. Tillaga til þingsályktunar
um sektir vegna mengunarbrota á hafnarsvæðum.
Flm.: Elín S. Harðardóttir.
Alþingi ályktar að skora á samgönguráðherra að setja nú þegar reglugerð um framkvæmd sektargerða skv. 29. gr. laga um varnir gegn mengun sjávar, nr. 32 frá 5. maí 1986, og um sjóð sem verja skal til mengunarvarna á sjó skv. 32. gr. sömu laga.
Greinargerð.
Samkvæmt 29. gr. laga um varnir gegn mengun sjávar, nr. 32 frá 5. maí 1986, er hafnarstjóra og lögreglustjóra heimilt að beita sektum vegna losunar eða úrkasts á hafnarsvæði sínu. Samkvæmt 32. gr. sömu laga skulu sektir renna í sjóð sem verja skal til mengunarvarna á sjó eftir því sem nánar segir í reglugerð er samgönguráðherra setur.
Sektarákvæðum þessum mun ekki hafa verið beitt, enda hefur samgönguráðherra ekki sett reglugerð um sjóðinn.
Talsverður vandi skapast þó enn vegna þess að olíumengun frá skipum á sér stað í höfnum og er brýnt að sektarákvæðum sé beitt í slíkum tilvikum og sektirnar notaðar til að efla mengunarvarnir á sjó eins og lögin gera ráð fyrir.