Ferill 28. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 28 . mál.


Ed.

544. Nefndarálit



um frv. til l. um mannanöfn.

Frá menntamálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund til viðræðna um það Hallgrím Snorrason hagstofustjóra, Skúla Guðmundsson, skrifstofustjóra Þjóðskrár, Guðrúnu Kvaran orðabókarritstjóra og Árna Böðvarsson, málfarsráðunaut Ríkisútvarpsins. Þá bárust nefndinni umsagnir um frumvarpið frá Prestafélagi Íslands, Íslenskri málnefnd, heimspekideild Háskóla Íslands, biskupi Íslands, Jafnréttisráði og Hagstofu Íslands.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Breytingarnar eru eftirfarandi:
    Breytingin við 2. gr. er vegna mistaka í prentun. Fjórði málsliður 2. gr. á að vera sérstök málsgrein.
    Breytingin við 3. gr. er til að kveða skýrar á um mannanafnaskrár. Samkvæmt breytingartillögunni eru tekin af öll tvímæli um það að skráin sé viðmiðunarskrá en ekki tæmandi heimild um þau nöfn sem leyfa mætti. Jafnframt er kveðið á um að hún skuli gefin út á þriggja ára fresti (í stað fimm ára) og gerð aðgengileg almenningi.
    Breytingin við 5. gr. er til að taka af öll tvímæli um að skírn og nafngift sé tvennt ólíkt og því geti skírn farið fram þó að ágreiningur um nafn barns hafi verið lagður til úrskurðar mannanafnanefndar.
    Breytingin við 6. gr. tryggir að ekki dragist á langinn að mannanafnanefnd kveði upp úrskurð í máli sem henni hefur borist. Er miðað við að ekki líði lengra en tvær vikur frá því að málið barst henni og þar til að úrskurður liggur fyrir.
    Breytingin við 8. gr. felur í sér að gefa má barni, sem á erlendan ríkisborgara fyrir annað foreldri, erlent nafn sem annað tveggja eiginnafna. Frumvarpið gerði ráð fyrir að erlenda nafnið yrði hið síðara af tveimur eiginnöfnum. Nefndin telur hins vegar að það eigi að vera á valdi foreldranna að ákveða hvort hið íslenska eða hið erlenda sé fyrra eiginnafnið.
    Breytingar á 12. gr. eru orðalagsbreytingar.
    Breytingin við 23. gr. varðar málsmeðferð þegar barni er ekki gefið nafn innan þess tíma sem lögin tiltaka. Frumvarpið gerði ráð fyrir að Þjóðskrá mundi tilkynna um slíkt til dómsmálaráðherra er gæti beitt viðhlítandi þvingunarúrræðum. Niðurstaða nefndarinnar varð hins vegar sú að heppilegra væri að Þjóðskrá vekti fyrst athygli forsjármanns eða forsjármanna barnsins á þessu ákvæði laganna og skoraði á hann eða þá að gefa barninu nafn án tafar og að ekki kæmi því til kasta dómsmálaráðuneytisins að beita þvingunarúrræðum nema áskoruninni væri ekki sinnt. Talið var rétt að úrskurður um þvingunaraðgerðir (dagsektir) væri á hendi dómsmálaráðuneytisins þar sem ráðuneytið fer með yfirstjórn þessa málaflokks. Í ljósi reynslunnar annars staðar á Norðurlöndum er þó líklegt að málið leysist oftast í framhaldi af áminningarbréfi Hagstofunnar og því komi sjaldan til þess að dómsmálaráðuneytið þurfi að beita þvingunarúrræðum.
    Breytingin við 24. gr. er til þess að taka af öll tvímæli um að frumvarpið gerir ráð fyrir að það sé dómsmálaráðherra er fari með mál er varða mannanöfn en ekki menntamálaráðherra eins og verið hefur samkvæmt auglýsingu um Stjórnarráð Íslands nr. 96/1969.
    Breytingin við ákvæði til bráðabirgða I er til þess að hraða því að skipuð verði mannanafnanefnd. Gert er ráð fyrir að dómsmálaráðherra leiti strax eftir tilnefningum í nefndina og skipi hana innan mánaðar frá birtingu laganna.
    Halldór Blöndal var fjarverandi afgreiðslu málsins.

Alþingi, 25. jan. 1991.



Eiður Guðnason,


form.

Jón Helgason,


frsm.

Guðrún J. Halldórsdóttir,


fundaskr.


Salome Þorkelsdóttir.

Skúli Alexandersson.

Valgerður Sverrisdóttir.