Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 305 . mál.
Nd.
549. Frumvarp til laga
um stöðlun.
(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990 – 91.)
1. gr.
Íslenskur staðall.
Íslenskur staðall er staðall sem hefur verið staðfestur af Staðlaráði Íslands.
Í lögum þessum hafa hugtökin staðall , stöðlun og sammæli alþjóðlega viðurkennda merkingu og skal hún sett fram í íslenskum staðli um íðorð í stöðlun og skyldri starfsemi.
2. gr.
Markmið stöðlunar.
Markmið stöðlunar er að auka vöxt og nýsköpun íslensks atvinnulífs og bæta starfsskilyrði þess, auk þess að bæta vernd og öryggi neytenda.
3. gr.
Staðlaráð Íslands.
Staðlaráð Íslands er sjálfseignarstofnun sem starfar á grundvelli stofnskrár sem ráðið setur en iðnaðarráðherra staðfestir. Hlutverk Staðlaráðs er að vera vettvangur stöðlunar fyrir íslenskt atvinnulíf og neytendur.
Staðlaráð Íslands hefur einkarétt til að gefa út íslenska staðla. Stöðlun skal lúta þeim reglum sem settar eru samkvæmt lögum þessum. Í stofnskrá skal kveðið nánar á um markmið og verkefni ráðsins, stjórn, starfshætti, staðlagerð og aðild að ráðinu sem skal vera opin þeim sem hagsmuna hafa að gæta.
4. gr.
Alþjóðlegt staðlasamstarf.
Staðlaráð skal eiga aðild að alþjóðlegu samstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd og fara með atkvæði landsins á þeim vettvangi. Heimilt er þó ráðinu að fela stofnun, fyrirtæki eða samtökum að annast í umboði þess þátttöku í alþjóðastaðlasamstarfi að því tilskildu að þátttakan sé í samræmi við ákvæði þessara laga.
5. gr.
Stjórn.
Í stjórn Staðlaráðs skulu sitja sjö menn tvö ár í senn, sex kosnir á aðalfundi ráðsins og einn skipaður af iðnaðarráðherra. Á sama hátt skulu valdir sjö varamenn.
6. gr.
Fjármál.
Staðlaráð hefur sjálfstæðan fjárhag.
Stofnframlög til Staðlaráðs skulu ákveðin í stofnskrá. Ríkissjóður leggur fram sem stofnfjárframlag Iðntæknistofnunar Íslands þær eignir hennar sem nú eru einvörðungu nýttar til stöðlunarvinnu eða stöðlunarþjónustu, svo sem búnað og tæki á staðladeild stofnunarinnar og skjalasafn deildarinnar.
Heimilt er með samþykki allra aðila að Staðlaráðinu að auka stofnfé ráðsins. Aðilar Staðlaráðs bera ekki ábyrgð á skuldbindingum ráðsins umfram stofnframlög.
Tekjur Staðlaráðs eru m.a.:
Staðlaráð skal undanþegið tekjuskatti og eignarskatti til ríkissjóðs og gjöldum til sveitarfélaga.
7. gr.
Notkun staðla.
Staðall er til frjálsra afnota. Stjórnvöld geta þó gert notkun tilgreinds staðals skyldubundna með vísun til hans í opinberum stjórnvaldsfyrirmælum.
8. gr.
Birting.
Eigi sjaldnar en ársfjórðungslega skal á vegum Staðlaráðs gefa út Staðlatíðindi þar sem m.a. skal:
Geta skal útgáfu Staðlatíðinda í Lögbirtingablaðinu.
Við útgáfu auglýsinga og ákvörðun tímafrests samkvæmt þessari grein skal miðað við að aðilar, er hagsmuna eiga að gæta, geti haft áhrif á gerð staðalsins, svo sem nánar er kveðið á um í stofnskrá Staðlaráðs.
Heimilt er að gefa út íslenskan staðal á erlendu tungumáli ef sýnt er að það hindri ekki eðlileg not staðalsins.
Staðlaráð skal halda skrá yfir alla gilda íslenska staðla. Skráin skal birt eigi sjaldnar en einu sinni ári.
9. gr.
Gildistökuákvæði.
Lög þessi öðlast gildi 1. september 1991. Jafnframt breytast eftirtalin lagaákvæði:
1. tölul. 5. gr. hljóði svo: Frumkvæði í samráði við Staðlaráð Íslands um gerð staðla fyrir landmælingar og kortagerð og gerð landfræðilegra og staðfræðilegra grundvallarmælinga til kortalagningar á Íslandi og umsjón með þeim.
FR gefur út kröfur sem einstakar fóðurblöndur ætlaðar einstökum búfjártegundum skulu fullnægja og getur bannað framleiðslu og sölu á fóðurblöndum sem ekki fullnægja settum kröfum.
ÁR hefur eftirlit með því að tilbúinn áburður innihaldi þau efni og það magn sem framleiðandi gefur til kynna og ábyrgist í samræmi við settar kröfur um hverja áburðartegund.
SR hefur eftirlit með spírunarhæfni, hreinleika og öðrum eiginleikum sáðvöru sem ástæða þykir til, gefur út kröfur um samsetningu fræblandna og hefur eftirlit með að blöndunarhlutföll séu í samræmi við þær.
1. mgr. 4. gr. hljóði svo:
Umhverfisráðuneytið setur almenna byggingarreglugerð, svo og sérreglugerðir með ákvæðum um notkun staðla á ýmsum sviðum byggingariðnaðarins.
26. tölul. 2. mgr. 2. gr. hljóði svo: Viðmiðunarreglur og kröfur um efna - og gerlainnihald matvæla og annarra neyslu - og nauðsynjavara.
Ráðherra skal, að fengnum tillögum landlæknis, kveðja til nefnd sérfróðra manna til þess að skilgreina nánar og gera tillögur um staðallýsingar þess varnings er greinir í 1. mgr.
Lyfjanefnd gerir tillögur til ráðherra um staðallýsingar fyrir lyfjaform, gæði og hreinleika lyfjaefna og hjálparefna við lyfjagerð, svo og fyrir aðgerðir til greiningar og ákvörðunar á þessum efnum.
Ráðherra hefur á hendi auglýsingar og útgáfustarfsemi er að staðallýsingum lýtur.
Framleiðandi lyfja skal í hvívetna hlíta ákvæðum gildandi lyfjaskrár og staðallýsinga, svo og reglugerða þar að lútandi og góðum framleiðsluháttum í lyfjagerð.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Fyrir 1. maí 1991 boðar núverandi Staðlaráð stofnfund hins nýja Staðlaráðs. Á fundinum skulu lögð fram til samþykktar drög að stofnskrá fyrir Staðlaráð. Stofnfundur kýs stjórn Staðlaráðs til næsta reglulegs aðalfundar.
II.
Fastráðnum starfsmönnum staðladeildar Iðntæknistofnunar skal boðin sambærileg staða hjá hinni nýju sjálfseignarstofnun og þeir áður gegndu hjá staðladeild Iðntæknistofnunar. 14. gr. laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, á því eigi við um þá starfsmenn.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er flutt til þess að styrkja lagagrundvöll reglna um staðla hér á landi. Frumvarpið var fyrst flutt á 112. löggjafarþingi. Það var sent sl. sumar til kynningar hjá öllum helstu hagsmunaaðilum. Unnið hefur verið úr athugasemdum sem fram komu og er nú frumvarpið endurflutt að teknu tilliti til fjölmargra þessara athugasemda.
Staðlaráð Íslands starfar nú á grundvelli starfsreglna sem stjórn Iðntæknistofnunar setti með heimild í 3. mgr. 2. gr. laga nr. 41/1978, um Iðntæknistofnun Íslands, þar sem segir að stofnunin gegni hlutverki sínu m.a. með stöðlun. Lagalegur grundvöllur starfseminnar er hins vegar ófullnægjandi miðað við þá auknu áherslu sem lögð er á stöðlun og tengda starfsemi í Evrópu, þar á meðal hér á landi.
Á alþjóðavettvangi hefur einkum verið fjallað um staðla í viðræðum um hindrunarlaus viðskipti á milli landa. Gerður hefur verið samningur á vettvangi GATT um viðskiptahindranir á tæknisviðum. Í samningnum eru hugtökin staðall og stöðlun skilgreind, auk þess sem kveðið er á um að vísa skuli til alþjóðlegra staðla í opinberum stjórnvaldsfyrirmælum fremur en að tilgreina í einstökum atriðum hverjar tæknilegar kröfur skuli gera til vöru eða þjónustu.
Samkvæmt reglum Alþjóðastaðlasambandsins ISO (International Organization for Standardization) og Alþjóðaraftækninefndarinnar IEC (International Electrotechnical Committee) er eitt megineinkenni staðla og stöðlunar að þeir eru samdir í samvinnu helstu hagsmunaaðila og í þeim endurspeglast góður framkvæmdamáti að bestu manna yfirsýn. Af þessu leiðir að enginn einstaklingur eða stofnun getur samið staðal án samráðs við hagsmunaaðila. Þetta samráð greinir staðla frá öðrum reglum og vöruforskriftum.
Annað atriði sem greinir staðla frá öðrum fyrirmælum er að staðlar eru frávíkjanlegir.
Vegna þessara eiginleika staðla ákvað framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EB) að þeir skyldu gegna veigamiklu hlutverki í áformum þess að gera bandalagið að einum markaði fyrir árslok 1992. Hinn 7. maí 1985 ákvað ráðherraráð EB að beita svokallaðri nýju aðferð (New Approach) við að samræma tæknilegar reglur og staðla í aðildarríkjunum. Samkvæmt nýju aðferðinni á að takmarka lögbundna samræmingu, þ.e. samræmingu í tilskipunum EB, á tæknisviðum við grunnkröfur um öryggi og heilsu manna og dýra og verndun umhverfisins. Síðan var þeim stofnunum (félögum) sem höfðu unnið að stöðlun í iðnaði fengið það hlutverk að semja tæknilegar forskriftir í einstökum atriðum. Þessar forskriftir eru síðan gefnar út sem samræmdir staðlar í aðildarlöndum bandalagsins. Framleiðendum er í sjálfsvald sett hvort þeir nota staðlana en svo er litið á að sá sem fylgir stöðlunum hafi fullnægt grunnkröfunum í tilskipunum.
Á sama tíma var gerður rammasamningur við evrópsku staðlasamböndin, CEN (European Committee for Standardization) á almennu sviði og CENELEC (European Committee for Electrotechnical Standardization) á raftæknisviði, um að stýra gerð þeirra staðla sem gert væri ráð fyrir í tilskipunum EB. Í rammasamningunum er það gert að skilyrði að samþykktir staðlar á vettvangi staðlasambandanna (Evrópustaðlar) verði gerðir að landsstöðlum í hverju aðildarlandi CEN og CENELEC innan missiris frá samþykkt þeirra og þeir landsstaðlar numdir úr gildi sem brjóta í bága við Evrópustaðla. Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA, fylgdu á eftir og gerðu samsvarandi samning við staðlasamböndin. Í yfirstandandi samningaviðræðum um Evrópskt efnahagssvæði er gert ráð fyrir að vísað verði til samræmdu staðlanna í stjórnvaldsfyrirmælum á tæknisviðum og við opinber innkaup.
Staðlaráð Íslands gerðist aðili að staðlasamböndunum CEN og CENELEC um miðbik ársins 1988.
Með þeirri nýju stefnu sem hér hefur verið lýst breytist hlutverk þeirra sem semja staðla í smærri Evrópuríkjum mikið. Áður voru nánast einvörðungu samdir staðlar sem iðnaðurinn í viðkomandi ríki taldi sig þurfa á að halda á þeim hraða sem aðstæður leyfðu hverju sinni. Engar kvaðir lágu á stjórnvöldum að vísa til staðlanna. Á þrjátíu ára tímabili höfðu þannig alls verið staðfestir um fimmtíu staðlar á Íslandi en síðan Staðlaráð gerðist aðili að CEN og CENELEC 1988 hafa um 500 staðlar verið staðfestir.
Í ljósi þess mikilvæga hlutverks sem stöðlum er ætlað í framtíðinni innan Evrópu er einstökum ríkjum nauðsynlegt að fylgjast vel með samningu þeirra og taka fullan þátt í þeirri vinnu á þeim sviðum sem varða hagsmuni þeirra.
Með bréfi dags. 2. ágúst 1989 skipaði iðnaðarráðherra eftirtalda menn í nefnd til að gera tillögu um frumvarp til laga um staðla: Halldór Jón Kristjánsson, tilnefndan af iðnaðarráðuneyti, Halldór Árnason, tilnefndan af sjávarútvegsráðuneyti, Sturlaug Daðason, tilnefndan af Útflutningsráði Íslands, Sigurð Arnalds, tilnefndan af Verkfræðingafélagi Íslands, og Davíð Lúðvíksson, tilnefndan af Staðlaráði Íslands.
Nefndinni var falið að hafa samráð við þá hagsmunaaðila sem málið varðaði. Framkvæmdastjóri Staðlaráðs, Jóhannes Þorsteinsson, starfaði með nefndinni.
Til undirbúnings vinnu nefndarinnar var aflað gagna um tilhögun staðlamála í Evrópu. Þáverandi framkvæmdastjóri CEN, Evangelos Vardakas, lagði fram tillögur um löggjöf um staðla á Íslandi og einnig var safnað athugasemdum við tillögur hans víðs vegar að. Tillögurnar og athugasemdir við þær voru grundvöllur starfsins í nefndinni.
Í frumvarpinu er eftirfarandi lagt til:
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Með greininni er það lagt til að skýrt verði kveðið á um hvað geti talist íslenskur staðall. Þessu ákvæði er einnig ætlað að taka til samsetninga þar sem einkunnum eða öðrum ákvæðisliðum kann að vera bætt við orðalagið íslenskur staðall.
Merking hugtakanna í greininni skal vera í samræmi við GATT - samninginn um viðskiptahindranir á tæknisviðum, samkomulag EFTA - ríkjanna um gagnkvæma viðurkenningu á niðurstöðum prófana og staðfestingum á samræmi (Tampere - samkomulagsins) og leiðbeiningarrit ISO og IEC nr. 2. Leiðbeiningarritið skal gefa út sem íslenskan staðal.
Í leiðbeiningarritinu hafa eftirfarandi hugtök þessa merkingu:
Staðall (e. standard): sérstök gerð opinbers skjals sem er byggt á sammæli hagsmunaaðila og staðfest af þar til bærum aðila. Í því eru settar fram reglur, leiðbeiningar fyrir eða lýsing á einkennum algengrar og endurtekinnar starfsemi eða afrakstur hennar. Markmið með gerð slíks skjals er að ná sem mestri samskipan á gefnu sviði með sem víðtækastri notkun þess.
Stöðlun (e. standardization): það að ná sammæli um skjal til víðtækrar notkunar sem inniheldur lýsingu á reglum, leiðbeiningum fyrir eða lýsingu á einkennum algengrar og endurtekinnar starfsemi eða afrakstrar hennar. Skjalið skal samið í þeim tilgangi að ná fram sem mestri samskipan mála á gefnu sviði og að það staðfest af þar til bærum aðila.
Alþjóðlegur staðall (e. international standard): opinber staðall sem hefur verið staðfestur af alþjóðastaðlasambandi.
Reglugerð á tæknisviði (e. technical regulation): skjal þar sem kveðið er á um lagalega bindandi kröfur á tæknisviði, staðfestar af stjórnvaldi. Kröfurnar eru ýmist tilgreindar í einstökum atriðum, með vísun til staðals, tæknilegrar forskriftar eða framkvæmdastaðals, eða með því að taka staðalinn upp í heild sinni. Undir þetta falla m.a. lög, reglugerðir, tilkynningar og orðsendingar.
Tæknileg forskrift (e. technical specification): skjal þar sem mælt er fyrir um þær kröfur sem vara, ferli eða þjónusta á að fullnægja og þær tilgreindar í einstökum atriðum.
Vottun (e. certification): starfsemi óháðs aðila þar sem sýnt er fram á að nægjanlegt traust megi bera til þess að réttilega auðkennd og tiltekin vara, ferli eða þjónusta samræmist kröfum í tilgreindum staðli eða öðrum reglum.
Sammæli (e. consensus): almennt samkomulag um að mikilvægir hagsmunaaðilar í málinu haldi ekki uppi andstöðu við veigamikil atriði. Sammæli næst með því að leitast er við að taka tillit til sjónarmiða allra aðila sem málinu tengjast og vinna að lausn sem sameinar andstæðar röksemdir.
Með frumvarpinu er það lagt til að þessi hugtök og viðteknar skilgreiningar á þeim verði settar ásamt öðrum helstu hugtökum á sviðinu í íslenskan staðal.
Tekið skal fram í þessu sambandi að Evrópustaðall er opinber staðall sem hefur verið staðfestur af öðru hvoru evrópsku staðlasambandanna, CEN eða CENELEC.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Um 3. gr.
Með greininni er lagt til að Staðlaráð starfi sem sjálfstæð einkastofnun er verði opinn vettvangur hagsmunaaðila um stöðlun. Staðlaráð skal starfa á grundvelli stofnskrár er ráðið setur og ráðherra staðfestir. Lagt er til að meginverkefni og skipulag Staðlaráðs verði skilgreint í stofnskrá. Frumdrög að stofnskrá fylgdu frumvarpi þessu þegar það var lagt fyrir Alþingi á 112. löggjafarþingi þess. Horfið var frá því nú þar sem stofnskráin liggur enn ekki fyrir í endanlegri mynd og eðlilegt þykir að stofnaðilar Staðlaráðs taki þátt í endanlegri mótun hennar. Í frumdrögunum er byggt á þeirri stefnu að ráðið greiði fyrir því að stöðlun verði beitt í opinberri stjórnsýslu og hjá einkaaðilum og er þá m.a. átt við opinber innkaup og stærri útboð. Enn fremur að staðið verði þannig að gerð og kynningu staðla að vísa megi til þeirra í auknum mæli í opinberum stjórnvaldsfyrirmælum, sbr. einnig athugasemdir við 7. gr. frumvarpsins. Þetta er í samræmi við þá meginstefnu Evrópuríkja og þeirra ríkja, sem hafa undirritað GATT - samninginn um viðskiptahindranir á tæknisviðum, að samræmdir staðlar komi í stað mismunandi reglugerða í einstökum ríkjum. Slík samræming stuðlar að afnámi tæknilegra viðskiptahindrana.
Um 4. gr.
Í samræmi við stefnumótun í Evrópu um að staðlamál verði samræmd er í greininni lagt til að Staðlaráði verði veittur einkaréttur til að gefa út íslenska stað la. Með þessu móti er leitast við að tryggja að enginn vafi leiki á því hvað getur talist íslenskur staðall.
Enn fremur er lagt til að Staðlaráð eigi aðild að alþjóðasamstarfi staðlaráða fyrir Íslands hönd. Rétt þykir þó að ráðinu sé heimilt að fela öðrum þátttöku í slíku samstarfi.
Þessi grein frumvarpsins tekur til aðildar að Alþjóðastaðlasambandinu (ISO), Alþjóðaraftækninefndinni (IEC), auk evrópsku staðlasambandanna, CEN og CENELEC. Hún tekur hins vegar ekki til margvíslegrar þátttöku íslenskra stjórnvalda og stofnana í samræmingarvinnu á alþjóðavettvangi að því marki sem þessi vinna miðast ekki við setningu landsstaðla. Greinin tekur þannig ekki til þess starfs sem fer fram hjá Codex Alimentarius, en þátttaka Íslendinga í þeim samtökum er á vegum heilbrigðisráðuneytis. Ekki er þó útilokað að síðar verði sú aðild á vegum Staðlaráðs Íslands.
Í ljósi þess að lagt er til að Staðlaráði verði veittur einkaréttur til útgáfu staðla hér á landi er nauðsynlegt að í stofnskrá ráðsins verði skýrar reglur um aðild að ráðinu og um að aðild standi hagsmunaaðilum opin.
Um 5. gr.
Gera má ráð fyrir að mun fleiri aðilar verði að Staðlaráði en nú er og því er í greininni lagt til að ráðið kjósi sér sjö manna stjórn. Með hliðsjón af því að gert er ráð fyrir að ríkisvaldið veiti verulegu fjármagni til starfsemi ráðsins þykir eðlilegt að leggja til að iðnaðarráðherra skipi einn mann í stjórn ráðsins og að í stofnskrá verði kveðið á um að hann sé jafnframt formaður stjórnarinnar. Aðilar að ráðinu kjósi stjórnarmenn að öðru leyti á aðalfundi eftir nánari ákvæðum í stofnskrá.
Um 6. gr.
Í greininni er fjallað um fjárhagsgrundvöll Staðlaráðs. Ráðið mun hafa sjálfstæðan fjárhag. Gert er ráð fyrir að Staðlaráð njóti framlaga á fjárlögum. Aukin verkefni staðlaráða í Evrópu hafa valdið því að framlög ríkisins til þessa málaflokks hafa aukist í þessum löndum. Reiknað er með að svo verði einnig hér á landi. Aukningin er einkum vegna þess að með aðildinni að CEN og CENELEC hafa Íslendingar játast undir þá skyldu að gera staðla sambandanna að sínum. Aðildin er liður í aðlögun að samræmdum Evrópumarkaði og það verður því að teljast eðlilegt að ríkisvaldið tryggi grunnfjármögnun vinnu vegna þessarar skyldu.
Þá hefur þótt eðlilegt að gera ráð fyrir að fyrirtæki og stofnanir, sem aðild eiga að ráðinu, greiði stofnframlag og árgjald. Gert er ráð fyrir að ráðið sjálft ákveði árgjöld í stofnskrá. Þá er einnig reiknað með því að ráðið hafi allnokkrar tekjur af sölu staðla og staðlaþjónustu.
Um 7. gr.
Hér er lagt til að lögfest verði sú meginregla að staðlar séu til frjálsra afnota í skiptum manna á meðal . Í samræmi við alþjóðlega þróun er hins vegar gert ráð fyrir að stjórnvöld hér á landi muni í auknum mæli vísa til staðla í reglugerðum og öðrum stjórnarvaldsfyrirmælum þannig að sá sem fylgir tilgreindum stöðlum teljist hafa fullnægt ákvæðum stjórnvaldsfyrirmælanna. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að stjórnvöld geti gert notkun staðals skyldubundna.
Um 8. gr.
Hér er fjallað um birtingu staðla og tilkynninga um ný stöðlunarverkefni. Greininni er ætlað að tryggja að allir þeir sem hagsmuna eiga að gæta geti haft áhrif á gerð staðals. Trygg birting staðla auðveldar enn fremur tilvísun í staðla í opinberum reglugerðum.
Þá er lagt til að heimilt verði að staðfesta staðal sem íslenskan staðal þó hann sé á erlendu máli ef ljóst er að not hans eru bundin við aðila er kunna þá tungu, t.d. flóknir staðlar á flugmálasviði. Þetta er í samræmi við breytingar sem gerðar hafa verið á stefnu einstakra Norðurlanda í þessum efnum. Nefna má að Finnar hafa nýverið breytt stjórnarskrárákvæði er kveður á um lögbirtingu á finnsku og sænsku á þann veg sem hér er lagt til. Heppilegt þykir að lögfesta ekki að staðlar skuli ávallt gefnir út á íslensku. Þess í stað verði metið í hverju tilviki, m.a. með tilliti til notkunar staðalsins hvort staðall skuli þýddur.
Um 9. gr.
Lagt er til að lögin taki gildi 1. september 1991. Jafnframt er lagt til að samtímis breytist orðalag um staðla og stöðlun í þeim lagagreinum sem eru taldar upp í greininni. Þessar breytingar eru taldar nauðsynlegar þar sem í þeim eru orðin staðall og stöðlun notuð í merkingu sem er ekki í samræmi við alþjóða skilgreiningar, sbr. athugasemdir við 1. gr. lagafrumvarpsins. Greinin þarfnast að öðru leyti ekki skýringa.