Ferill 309. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 309 . mál.


Sþ.

553. Tillaga til þingsályktunar



um heildarúttekt á stöðu fangelsismála og æskilega framtíðarskipan þeirra.

Flm.: Danfríður Skarphéðinsdóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson,


Guðrún J. Halldórsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir,


Sigrún Helgadóttir.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa sjö manna nefnd sérfróðra aðila er hafi það verkefni að gera heildarúttekt á fangelsismálum og leggja fram tillögur um æskilega framtíðarskipan þeirra.

Greinargerð.


    Hin síðari ár hafa fangelsismál oft verið í brennidepli og hefur umræðan einkum beinst að því sem aflaga hefur farið, aðbúnaði og húsakosti fangelsanna. Ýmsar mikilvægar umbætur hafa orðið á seinni árum. Má sem dæmi nefna þá þjónustu sem Fangelsismálastofnun ríkisins veitir og skólastarf í tengslum við fangelsið á Litla-Hrauni. Það hlýtur alltaf að vera neyðarúrræði að svipta fólk frelsi sínu og dæma það til fangelsisvistar. Markmiðið með fangelsisvist á að vera að gefa fólki tækifæri til að bæta sig. Mikilvægt er að móta heildarstefnu í fangelsismálum þjóðarinnar sem hafi það að markmiði að góður aðbúnaður sé í fangelsunum og umhverfið uppbyggilegt þannig að föngum sé gefið raunverulegt tækifæri til að bæta sig.
    Í framhaldi af þingsályktunartillögu, sem samþykkt var á Alþingi 20. apríl 1982, skipaði Alþingi sjö manna nefnd sem hafði eftirfarandi verkefni:
    1. Að kanna stöðu fangelsismála.
    2. Að leggja fram tillögur um brýnar úrbætur.
    3. Að gera áætlun um æskilega framtíðarskipan fangelsismála.
    Nefndin lauk störfum í upphafi árs 1987 með því að senda frá sér frumvarp til laga um fangelsi og fangavist og frumvarp til laga um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga, nr. 54/1971. Má segja að afraksturinn af starfi nefndarinnar sé núgildandi lög um fangelsi og fangavist sem öðluðust gildi 1. janúar 1989.
    Enginn vafi leikur á að með stofnun Fangelsismálastofnunar í kjölfar laganna var stigið mikilvægt skref til að auka og bæta þjónustu við þá einstaklinga sem dæmdir hafa verið, fanga, fyrrverandi fanga og fjölskyldur þeirra. Nærri lætur að skjólstæðingar Fangelsismálastofnunar séu milli sjö og átta hundruð á hverjum tíma. Starfsemin hefur aukist jafnt og þétt, en þar eð stofnunin hefur frá upphafi verið undirmönnuð hefur hún átt erfitt með að sinna lögboðnum verkefnum sínum sem skyldi. Mjög mikilvægt er að úr því verði bætt.
    Þrátt fyrir tilvist Fangelsismálastofnunar er enn mikið verk óunnið á sviði fangelsismála og nægir í því tilliti að benda á orð forstjóra Fangelsismálastofnunar í ársskýrslu fyrir árið 1989 þar sem segir:
    „Í umræðu um fangelsismál á opinberum vettvangi hefur þeirri alhæfingu verið haldið á lofti að þau séu alfarið í ólestri. Undir það verður ekki tekið hér, en hins vegar er ástand ýmissa þátta húsnæðismála fangelsanna, aðbúnaður fanga og meðferð geðsjúkra afbrotamanna með þeim hætti að óviðunandi er. Öll tök eru á að leysa vandann. Til þess þarf vilja og fjármagn. Ljúka verður verki nefndar Alþingis frá árinu 1982 um heildarúttekt á stöðu fangelsismála, tillögur um brýnar úrbætur í þeim efnum og áætlun um æskilega framtíðarskipan fangelsismála á Íslandi. Það er löngu tímabært að móta heildstæða fangelsismálastefnu þar sem markmið og leiðir eru sett fram. Það er ekki verjandi að ýta þessum málaflokki ætíð aftast í röðina.“
    Í ljósi þess ástands sem hér er lýst telja flutningsmenn brýnt að sérfróðir menn með starfsreynslu og þekkingu á þessu sviði verði skipaðir til þess að gera tillögur í samræmi við yfirlýstan vilja Alþingis frá 20. apríl 1982 og ljúki þar með ætlunarverki þingsins. Flutningsmenn taka undir þau orð forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins um að löngu sé tímabært að móta heildstæða stefnu í fangelsismálum hér á landi. Stjórnvöld hafa vanrækt þennan málaflokk allt of lengi en nú er ekki lengur verjandi að láta hann bíða.
    Flutningsmenn telja mikilvægt að nefndin hraði störfum sínum og leggja til að auk forstjóra Fangelsismálastofnunar verði fulltrúi dómsmálaráðuneytis, afbrotafræðingur frá Fangelsismálastofnun, forstöðumaður fangelsis, fangelsislæknir, fulltrúi Dómarafélags Íslands og fulltrúi Fangavarðafélags Íslands skipaðir í nefndina.