Ferill 317. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. –
317
. mál.
Sþ.
562. Fyrirspurn
til félagsmálaráðherra og menntamálaráðherra um brunavarnir í skólum.
Frá Inga Birni Albertssyni og Skúla Alexanderssyni.
Hvernig er háttað brunavörnum og eldvarnareftirliti í skólum?
Fylgjast ráðuneyti félagsmála og menntamála með framkvæmd sveitarfélaga á 4. gr. laga nr. 74/1982, um brunavarnir og brunamál, að því er skóla varðar?
Eru brögð að því að ákvæðum brunavarnarreglugerðar nr. 269/1978, um viðvörunarkerfi í skólum, (13.6) sé ekki framfylgt?