Ferill 324. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 324 . mál.


Sþ.

572. Tillaga til þingsályktunar



um formlegt samstarf Landsvirkjunar, Orkustofnunar og Vegagerðar ríkisins um vegalagningu í óbyggðum.

Flm.: Jónas Hallgrímsson, Jón Kristjánsson, Kristinn Pétursson,


Valgerður Sverrisdóttir, Jón Helgason, Málmfríður Sigurðardóttir,


Jón Sæmundur Sigurjónsson, Eggert Haukdal.



     Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um að sett verði á laggirnar formleg samstarfsnefnd Vegagerðar ríkisins, Orkustofnunar og Landsvirkjunar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við vegi samhliða línulögnum á hálendi Íslands á næstu árum.
    

Greinargerð.


     Sem kunnugt er eru uppi áform um að ráðast í verklegar framkvæmdir vegna virkjunar Jökulsár í Fljótsdal og fyrirliggjandi eru áætlanir um virkjanir annarra fallvatna á hálendi landsins.
    Orkusala frá fyrirhugaðri Fljótsdalsvirkjun er grundvölluð á starfsemi orkufreks iðnaðar. Þessum áformum mun óhjákvæmilega fylgja vegalagning vegna vinnu við raflínulagnir um óbyggðir.
    Samkvæmt landslögum hefur Landsvirkjun einkarétt til framkvæmda við virkjun fallvatna landsins og þar með byggingar flutningslína. Ljóst er að leggja verður vegi og slóða um óbyggð svæði bæði til að sinna rannsóknum og aðdráttum vegna framkvæmda þegar þær hefjast.
    Ekki verður séð að Vegagerð ríkisins hafi möguleika til formlegra afskipta eða þátttöku í ákvörðunum vegna þessara vegalagna og hamlar þar hvort tveggja, lagaheimildir og fjárskortur. Ekkert formlegt samstarfsverkefni eða mynsturáætlun liggur heldur fyrir frá Landsvirkjun, Orkustofnun eða Vegagerð ríkisins um hvaða landsvæði skuli lögð undir slíka vegi. Æskilegt og nauðsynlegt væri að samstarfs - og framkvæmdaraðilar hefðu einnig náið og gott samstarf við náttúruverndarsamtök og heimaaðila um hvaða landsvæði skuli vernduð og hver ekki.
    Þó vitað sé að samband hafi komist á milli Vegagerðar ríkisins og Landsvirkjunar er ljóst að Vegagerð ríkisins er ekki aðili að þessum framkvæmdum og því hvorki eigandi eða ráðstöfunarrétthafi þeirra í framtíðinni nema öðruvísi verði ákveðið. Augljóst hagræði og einföldun auk fjárhagslegs sparnaðar yrði því af formlegu samstarfi þessara aðila ekki síst þegar fram líða stundir.