Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 335 . mál.


Ed.

592. Frumvarp til laga



um veitingu ríkisborgararéttar.

(Lagt fyrir Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990 91.)



1. gr.


     Ríkisborgararétt skulu öðlast:
     Berger, Jiri, sálfræðingur, f. 1. júlí 1950 í Tékkóslóvakíu.
     Namwijit, Sophaporn, verkamaður, f. 15. september 1950 á Thailandi.
     Ólöf Halla Hjartardóttir, verslunarmaður, f. 20. október 1953 í Reykjavík.
     Roberts, Kristrún Ingibjörg, bréfberi, f. 22. júní 1950 í Reykjavík.
     Rossen, Magnús Ólafur, bifvélavirki, f. 15. júlí 1967 í Stykkishólmi.
     Toohey, John Patrick, kerfisfræðingur, f. 17. janúar 1963 á Írlandi.

2. gr.


     Nú fær maður, sem heitir erlendu nafni, íslenskt ríkisfang með lögum og skulu þá börn hans, fædd síðan, heita íslenskum nöfnum samkvæmt lögum um mannanöfn, en hann skal, þá er hann hlýtur íslenskt ríkisfang, taka sér íslenskt eiginnafn ásamt því sem hann ber fyrir er börn hans taka sem kenninafn. Honum skal þó heimilt, ef hann kýs heldur, að breyta svo eiginnafni sínu að það fullnægi kröfum laga um mannanöfn.

3. gr.


     Lög þessi öðlast þegar gildi.


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


     Umsækjendur þeir, sem teknir hafa verið á lagafrumvarp þetta, fullnægja skilyrðum sem sett hafa verið af allsherjarnefndum beggja þingdeilda.
     Frumvarp þetta er annað frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar sem borið er fram á yfirstandandi 113. löggjafarþingi.
     Á þremur síðustu þingum hefur verið afgreitt fyrir miðsvetrarhlé frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar og síðan í lok þingsins um vorið hefur einnig verið afgreitt frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar. Þessi háttur á afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt hefur reynst til mikilla þæginda, bæði styttir það biðtíma umsækjenda og dreifir afgreiðsluálagi hjá ráðuneytinu.