Ferill 339. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 339 . mál.
Ed.
598. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar.
Flm.: Margrét Frímannsdóttir, Skúli Alexandersson.
1. gr.
18. gr. laganna orðast svo:
Umboðsaðilar og fyrirtæki, er annast dreifingu og sölu á olíu, skulu koma upp fullnægjandi búnaði og þjálfa lið til hreinsunar á olíu úr sjó. Hafa skal samráð við viðkomandi sveitarstjórn, hafnaryfirvöld og Siglingamálastofnun ríkisins. Siglingamálastofnun ríkisins skal setja reglur um samræmdan búnað með hagkvæm samnot í huga.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er flutt til þess að létta af sveitarfélögum þeirri skyldu sem á þau er lögð skv. 18. gr. laga nr. 32/1986, um varnir gegn mengun sjávar, að þau annist og kosti búnað til að hreinsa olíu úr sjó. Þrátt fyrir ákvæði þetta hefur hreinsibúnaði ekki verið komið upp í höfnum landsins utan Reykjavíkur. Sveitarfélög eða hafnarsjóðir þeirra hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að standa undir þeim kostnaði sem þessu fylgir, þótt ríkissjóði beri að greiða hluta af þessum kostnaði.
Í 16. gr. laga um varnir gegn mengun sjávar segir að ef hætta er á mengun sjávar, sem brýtur gegn ákvæðum laganna, skuli sá sem ber ábyrgð á menguninni gera allt sem í hans valdi stendur til þess að koma í veg fyrir eða draga úr henni. Hann beri einnig ábyrgð á því tjóni sem aðgerðir hans valda öðrum. Í þeim tilvikum, sem hætta er á olíumengun á sjó í eða utan hafnarsvæðis, er sjaldnast hægt að benda á sveitarfélagið sem mengunarvald eða ábyrgðaraðila á þeim búnaði sem menguninni veldur. Það er því að dómi flutningsmanna eðlilegt að þau fyrirtæki og umboðsaðilar, sem annast sölu og dreifingu á olíu, beri sjálf kostnað af mengunarvarnabúnaði í höfnum landsins og þjálfi lið til að hreinsa olíu sem fer í sjó. Siglingamálastofnun skal samkvæmt frumvarpinu setja reglur um samræmdan búnað með hagkvæm samnot í huga og kemur þá að sjálfsögðu til greina að sami búnaður nýtist fleiri en einni höfn. Fullt samráð skal einnig haft við sveitarstjórn og hafnaryfirvöld á hverjum stað.