Ferill 121. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 121 . mál.


Nd.

613. Nefndarálit



um frv. til l. um ákvörðun dauða.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Nefndin hefur fjallað ítarlega um frumvarpið. Á fund nefndarinnar komu Björn Björnsson prófessor, Páll Ásmundsson yfirlæknir og Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri. Umsagnir bárust frá biskupi Íslands, Prestafélagi Íslands, Læknafélagi Íslands, læknaráði Landakotsspítala, læknaráði Borgarspítala, landlækni, læknaráði Landspítala, guðfræðideild Háskóla Íslands, læknadeild Háskóla Íslands, Rannsóknastofnun Háskóla Íslands í siðfræði, Hjúkrunarfélagi Íslands og Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga.
    Í umsögnum komu fram nokkrar athugasemdir við hvernig staðið yrði að setningu reglna, sbr. 4. gr. frumvarpsins, en ekki voru gerðar efnislegar athugasemdir við sjálfa greinina. Nefndin telur öryggi felast í því að skipuð yrði fastanefnd fagfólks sem málið varðar. Fastanefndin mundi fylgjast með nýjustu framþróun mála á því sviði sem hér um ræðir og gerði jafnframt tillögur til breytinga á reglugerð ef þurfa þætti. Einnig ítrekar nefndin nauðsyn þess að öllum bestu rannsóknum, sem völ er á í landinu, verði beitt til þess að ákvarða heiladauða.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 8. febr. 1991.



Guðmundur G. Þórarinsson,


varaform., frsm.

Anna Ólafsdóttir Björnsson,


fundaskr.

Geir Gunnarsson.


Helga Hannesdóttir.

Ragnhildur Helgadóttir.

Geir H. Haarde.


Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.