Ferill 133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 133 . mál.


Nd.

631. Nefndarálit



um frv. til l. um einkaleyfi.

Frá iðnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið á mörgum fundum og fékk á sinn fund til viðræðna um það Gunnar Guttormsson, Ómar Grétar Ingvarsson og Rán Tryggvadóttur frá iðnaðarráðuneytinu, Gunnar Örn Harðarson tæknifræðing, Jón Arnalds borgardómara, Hrafn Bragason, formann réttarfarsnefndar, Árna Vilhjálmsson, formann Samtaka áhugamanna um vernd eignarréttar á sviði iðnaðar, Árna Reynisson og Gunnlaug B. Daníelsson frá Félagi íslenskra stórkaupmanna, Sindra Sindrason frá Pharmaco, Kristján Sverrisson frá Glaxó, Davíð Lúðvíksson og Bjarna Þór Jónsson frá Félagi íslenskra stórkaupmanna, Friðrik Kristjánsson og Birki Árnason frá Omega Farma og Ottó B. Ólafsson og Guðbjörgu Eddu Eggertsdóttir frá Delta hf. Þá bárust nefndinni umsagnir um frumvarpið frá Félagi íslenskra stórkaupmanna og Glaxó.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með fáeinum breytingum sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Í breytingartillögunum er annars vegar um að ræða breytingu á gildistökuákvæði og hins vegar brottfall og breytingu á tilvísun til annarra laga.

Alþingi, 12. febr. 1991.



Hjörleifur Guttormsson,


form., frsm.

Kristín Einarsdóttir,


fundaskr.

Friðrik Sophusson.


Rannveig Guðmundsdóttir.

Páll Pétursson.

Sólveig Pétursdóttir.


Guðmundur G. Þórarinsson.