Ferill 366. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 366 . mál.


Sþ.

643. Fyrirspurn



til dóms- og kirkjumálaráðherra um kirkjugarðsgjöld og útfararþjónustu.

Frá Geir H. Haarde.



     Telur ráðherra heimilt samkvæmt ákvæðum laga nr. 21/1963, um kirkjugarða, að verja hluta kirkjugarðsgjalda til greiðslu kostnaðar við útfararþjónustu?
     Ef slík ráðstöfun tekna kirkjugarða telst heimil hyggst ráðherra þá beita sér fyrir því að allir greiðendur útfararkostnaðar eigi jafnan kost á hlutdeild í þessum tekjum?
     Hefur ráðherra hug á að beita sér fyrir því að allir aðilar, sem veita útfararþjónustu, búi að öðru leyti við sambærilega samkeppnisstöðu?