Ferill 371. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 371 . mál.
Sþ.
651. Tillaga til þingsályktunar
um afnám margsköttunar á iðgjaldi sjóðfélaga til lífeyrissjóða.
Flm.: Guðmundur H. Garðarsson.
Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra að hefja þegar undirbúning nauðsynlegra lagabreytinga sem hefðu það að markmiði að afnema margsköttun iðgjalda sjóðfélaga lífeyrissjóðanna.
Greinargerð.
Afar brýnt er að afnema það ranglæti sem viðgengst í skattalegri meðferð iðgjalda til lífeyrissjóðanna ásamt því hvernig lífeyrisgreiðslur frá sjóðunum valda lækkun greiðslu tekjutryggingar frá Tryggingastofnun. Þannig má í raun segja að iðgjald sjóðfélaganna til lífeyrissjóðanna sé skattlagt í þrígang, fyrst iðgjaldið, síðan greiðslur frá sjóðunum og hvernig þær valda skerðingu tekjutryggingar frá Tryggingastofnun sem auðvitað er líka skattlagning.
Í flestum löndum Evrópubandalagsins eru iðgjöld, bæði launþega og atvinnurekenda, skattfrjáls, en lífeyrir frá lífeyrissjóðum í þessum löndum er aftur á móti skattskyldur eins og hér á landi. Nú kann einhver að halda því fram að 4% iðgjald sjóðfélagans sé innifalið í persónuafslættinum í staðgreiðslunni. Um það má deila. En nauðsynlegt er að taka af öll tvímæli þannig að launþeginn sjái greinilega að iðgjald hans til lífeyrissjóðs sé ekki skattstofn.
Margoft hefur komið fram hversu mikið ranglæti felst í því að þeim einstaklingum, sem innt hafa af hendi greiðslur til lífeyrissjóðanna, skuli refsað þegar að töku ellilífeyris kemur með því að greiðslur frá sjóðunum valdi lækkun á greiðslum Tryggingastofnunar. Í kjarasamningunum í febrúar 1990 var samið um að greiðslur frá lífeyrissjóðum valdi minni lækkun á tekjutryggingu en aðrar tekjur. Frá því þetta var ákveðið hefur aftur sigið á ógæfuhliðina svo að ekki verður lengur við unað.
Í eftirfarandi greinargerð Jónasar Bjarnasonar verkfræðings um ofangreint efni, sem hann tók saman fyrir Landssamband lífeyrissjóða, má sjá að jaðarskattur einstaklings, sem býr einn, getur orðið 76% á tilteknu tekjubili, þ.e. af hverjum 1.000 kr. sem ellilífeyrir hans frá lífeyrissjóði hækkar heldur hann einungis eftir 239 kr.
Ofangreint ástand þessara mála er Alþingi og ríkisstjórn til hreinnar skammar. Því er mikilvægt að þessi þingsályktunartillaga verði afgreidd þegar á þessu þingi þannig að fjármálaráðherra fari ekki í grafgötur um vilja Alþingis og leggi þegar fram lagafrumvörp til lausnar málinu.
Fylgiskjal.
REPRÓ Í GUTENBERG