Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 139 . mál.
Nd.
664. Nefndarálit
um frv. til l. um listamannalaun.
Frá minni hl. menntamálanefndar.
Kvennalistinn styður heils hugar að átak sé gert í launamálum listamanna og fagnar framkomnu frumvarpi um listamannalaun.
Frumvarpið gerir ráð fyrir þremur sérgreindum sjóðum listamanna, rithöfunda, myndlistarmanna og tónskálda. Í fjórða sjóðinn, Listasjóð, eiga allir listamenn að geta sótt og sá sjóður á einnig að veita framlög til listamanna sem notið hafa listamannalauna undanfarin ár og náð 60 ára aldri.
Umsagnir um frumvarpið eru flestar mjög jákvæðar nema leikhúslistafólk vill ekki una því að þeim er ekki ætlaður sérgreindur launasjóður. Í breytingartillögu meiri hl. er gert ráð fyrir að a.m.k. helmingur starfslauna úr Listasjóði skuli veittur leikhúslistafólki. Sýnist eðlilegt að stíga skrefið til fulls og stofna sérstakan launasjóð leikhúslistafólks.
Í Félagi íslenskra leikara eru hátt á þriðja hundrað manns, leikarar, söngvarar, dansarar og leikmynda- og búningahönnuðir. Aðeins um fjórðungur þessa fólks er fastráðinn við leiklistarstofnanir og aðeins tveir af 68 í Félagi leikstjóra. Atvinnu- og öryggisleysi er síst minna innan þessa hóps listamanna en þeirra sem frumvarpið ætlar sérgreinda launasjóði, en margt það fólk vinnur t.d. við kennslu í listaskólum.
Flestir eru sammála um að menningin, og þá ekki síst tungumálið, geri Íslendinga að þjóð. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ritlistarmenn fái sem svarar 360 mánaðarlaunum en listamenn hins talaða orðs eiga samkvæmt frumvarpinu og breytingartillögum meiri hl. nefndarinnar að sætta sig við að skipta 240 mánaðarlaunum Listasjóðs með öllum öðrum listamönnum. Breytingartillaga Kvennalistans gerir ráð fyrir að helmingur Listasjóðs, 120 mánaðarlaun, verði notaður til að stofna launasjóð leikhúslistafólks. Breytingartillagan gerir því ekki ráð fyrir meiri fjárútlátum en tillaga meiri hl. heldur miðar að því að mæta þeirri ósk leikhúslistafólks að listgrein þeirra sé ekki sett skör lægra en aðrar listgreinar sem fá sína sérgreindu sjóði.
Fyrsti minni hl. styður breytingartillögur meiri hl. við 2., 6., 7., 8., 9. og 13. gr. frumvarpsins en gerir eftirfarandi breytingartillögur við frumvarpið.
1. Við 3. gr. Lagt er til að launasjóður leikhúslistafólks bætist við þá fjóra sjóði sem tilgreindir eru í greininni þannig að sérgreindir sjóðir verði fjórir og nái til allra stærstu listgreinanna.
2. Ný grein, sem verður 10. gr., er samhljóða 7. – 9. gr. frumvarpsins með breytingartillögum meiri hl. Þar er kveðið á um stærð og úthlutunarnefnd launasjóðs leikhúslistafólks. Félag íslenskra leikara, Félag leikstjóra á Íslandi og Leiklistarsamband Íslands tilnefna hvert sinn fulltrúa sem menntamálaráðherra skipar í úthlutunarnefnd sjóðsins.
3. Við 10. gr. sem verður 11. gr. Lagt er til að Listasjóður lækki og fari niður í 120 mánaðarlaun vegna þess að hluta hans hefur verið breytt í launasjóð leikhúslistafólks.
4. Við 13. gr. sem verður 14. gr. Breytingartillagan er samhljóða breytingartillögu meiri hl. nema Leiklistarsambandi Íslands er bætt við þá aðila sem menntamálaráðherra skal hafa samráð við þegar settar verða reglur um framkvæmd laganna.
Alþingi, 18. febr. 1991.
Sigrún Helgadóttir.