Ferill 227. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 227 . mál.


Nd.

674. Nefndarálit



um frv. til l. um málefni aldraðra, nr. 82/1989.

Frá 2. minni hl. heilbrigðis- og trygginganefndar.



    Annar minni hl. nefndarinnar er andvígur breytingunni sem felst í frumvarpinu því að hún felur í sér, ef samþykkt verður, verulega skerðingu á byggingarfé Framkvæmdasjóðs aldraðra. Þau nýju verkefni, sem samkvæmt frumvarpinu er bætt á sjóðinn, voru áður greidd með framlögum á fjárlögum fyrst og fremst. Með því að fella þessi verkefni á sjóðinn án þess að auka framlög til hans að sama skapi hlýtur þeim mun minna fé að verða til ráðstöfunar til byggingar húsnæðis fyrir aldraða. Kemur því í einn stað niður hvort fé sjóðsins er skert með þessum hætti eða hefðbundnum hætti í fjárlögum eða lánsfjárlögum.
    Á þeim tímum, sem þörf á slíku húsnæði fer vaxandi og hundruð aldraðra bíða hjúkrunarrýma, teljum við frumvarp eins og þetta til óþurftar.

Alþingi, 18. febr. 1991.



Ragnhildur Helgadóttir,


frsm.

Geir H. Haarde.