Ferill 382. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 382 . mál.
Nd.
680. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, með síðari breytingum.
Flm.: Sigrún Helgadóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kristín Einarsdóttir,
Málmfríður Sigurðardóttir.
1. gr.
Við 4. mgr. 17. gr. laganna bætist nýr töluliður svohljóðandi:
3. Skipulagningu á söfnun notaðra rafhlaðna og rafgeyma til endurvinnslu og eyðingar samkvæmt lögum um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum rafhlaðna og rafgeyma.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Greinargerð.
Á þskj. 679 er frumvarp til laga um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum rafhlaðna og rafgeyma þar sem mengunarvörnum Hollustuverndar ríkisins er falin skipulagning á söfnun notaðra rafhlaðna og rafgeyma til endurvinnslu og eyðingar. Jafnframt er nauðsynlegt að gera þær breytingar á lögunum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit sem þetta frumvarp kveður á um. Að öðru leyti vísast til greinargerðar með frumvarpi á þskj. 679.