Ferill 139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 139 . mál.
Nd.
683. Breytingartillögur
við frv. til l. um listamannalaun.
Frá meiri hl. menntamálanefndar (RA, SP, ÁrnG, GGÞ, ÓÞÞ, RH).
Þrír hinna fyrstnefndu sjóða eru sérgreindir sjóðir en Listasjóður er almennur sjóður í þágu allra listgreina. Allir sjóðirnir veita starfslaun, svo og náms- og ferðastyrki.
Þriggja manna nefnd, sem menntamálaráðherra skipar árlega samkvæmt tillögum Rithöfundasambands Íslands, úthlutar fé úr Launasjóði rithöfunda. Ákvörðun úthlutunarnefndar er endanleg og verður ekki áfrýjað.
Þriggja manna nefnd, sem menntamálaráðherra skipar árlega samkvæmt tillögum Sambands íslenskra myndlistarmanna, úthlutar fé úr Launasjóði myndlistarmanna. Ákvörðun úthlutunarnefndar er endanleg og verður ekki áfrýjað.
Þriggja manna nefnd, sem menntamálaráðherra skipar árlega samkvæmt tillögum Tónskáldafélags Íslands, úthlutar fé úr Tónskáldasjóði. Ákvörðun úthlutunarnefndar er endanleg og verður ekki áfrýjað.
Listasjóður veitir starfslaun og styrki er svara til 240 mánaðarlauna og bætast við 12 mánaðarlaun á ári næstu fimm ár. Listasjóður veitir einnig sérstök framlög til listamanna, m.a. til þeirra sem notið hafa listamannalauna undanfarin ár og náð hafa 60 ára aldri. Að minnsta kosti helmingur starfslauna úr Listasjóði skal veittur leikhúslistamönnum.
Menntamálaráðherra setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara að höfðu samráði við Rithöfundasamband Íslands, Samband íslenskra myndlistarmanna og Tónskáldafélag Íslands.