Ferill 69. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1990–91. – 1060 ár frá stofnun Alþingis.
113. löggjafarþing. – 69 . mál.


Ed.

697. Nefndarálit



um frv. til l. um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Frá minni hl. félagsmálanefndar.



    Frumvarp þetta um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla var lagt fram í neðri deild Alþingis á 112. löggjafarþingi. Félagsmálanefnd neðri deildar náði samkomulagi um að afgreiða málið með nokkrum breytingartillögum sem samþykktar voru í neðri deild. Ekki vannst tími til að taka málið fyrir í efri deild á síðustu dögum fyrir þingslit síðastliðið vor. Frumvarpið var því lagt fram í efri deild nú á haustþingi eins og það kom frá neðri deild í fyrra. Fulltrúi Kvennalistans í félagsmálanefnd neðri deildar féllst á að standa að afgreiðslu málsins þrátt fyrir það að kvennalistakonur hefðu viljað sjá tekið á jafnréttismálum af meiri myndugleik og festu en kom fram eftir umfjöllun neðri deildar um frumvarpið. Stuðningur Kvennalistans við frumvarpið byggðist ekki síst á því að nokkur mikilvæg atriði náðu fram að ganga sem ekki er að finna í núgildandi lögum. Má sem dæmi nefna ákvæði um Jafnréttisþing og virkara og skýrara hlutverk jafnréttisnefnda.
    Við umfjöllun málsins í félagsmálanefnd efri deildar á 113. löggjafarþingi komu fram ýmsar athugasemdir við frumvarpið og leggur meiri hl. félagsmálanefndar fram breytingartillögur í samræmi við þær á þskj. 672. Flestar tillögurnar snerta málfar og gerir minni hl. félagsmálanefndar ekki athugasemdir við þær. Fimmta breytingartillagan sem snertir 19. gr. frv. er hins vegar efnisleg og þar greinir minni hl. félagsmálanefndar á við meiri hluta nefndarinnar. Breytingartillagan felst í því að í kærunefnd jafnréttismála eigi fulltrúar ASÍ og VSÍ fasta fulltrúa. Í frumvarpinu, eins og það var lagt fram á 112. löggjafarþingi og eins og það kom frá neðri deild á sl. vori, var gert ráð fyrir að í þeim tilvikum er kæruefni varða vinnumarkað skuli fulltrúi heildarsamtaka viðkomandi starfsmanns og fulltrúi samtaka atvinnurekenda viðkomandi launagreiðanda taka sæti í kærunefnd.
    Minni hl. telur það réttlátari og eðlilegri skipan kærunefndar að þeir aðilar sem málið varðar hverju sinni eigi sæti í nefndinni. Þetta er í raun sama skipan og gildir um Félagsdóm. Minni hl. vekur athygli á að samstaða náðist um þessa skipan mála bæði í nefndinni sem samdi frv. og fulltrúar allra þingflokka áttu aðild að svo og í neðri deild Alþingis.
    Því er ljóst að minni hl. leggur til að breytingartillaga meiri hl. félagsmálanefndar við 19. gr. frumvarpsins verði felld en styður það að öðru leyti.

Alþingi, 20. febr. 1991.



Danfríður Skarphéðinsdóttir.